Allir drengirnir komnir út úr hellinum

Ótrúlegu björgunarafreki í Tælandi er að mestu lokið og drengjunum tólf ásamt þjálfara þeirra hefur verið komið út úr helli þar sem þeir hafa setið fastir í átján daga.

Björgunarfólk í Tham Luang-hellinum í Tælandi
Auglýsing

Öllum tólf drengj­unum og þjálf­ara þeirra hefur verið bjargað og komið út úr hell­inum í Tælandi sem þeir hafa setið fastir í í átján daga.

Þeir verða allir undir eft­ir­liti lækna næstu daga og jafn­vel vik­ur. Allir eru þeir þó í mun betra ásig­komu­lagi en búist var við. Þeim er haldið í ein­angrun vegna hættu á smiti frá vinum og ætt­ingj­um, en ónæm­is­kerfi þeirra er veik­burða eftir dvöl­ina í hell­in­um. For­eldrar þeirra hafa aðeins fengið að sjá syni sína í gegnum gler á sjúkra­húsi.

Fremstu kaf­arar og björg­un­ar­sveit­ar­menn heims komu að björg­un­ar­að­gerðum í Tælandi. Ekki allir þeirra eru komnir úr hell­in­um, enn er beðið eftir fjórum björg­un­ar­mönn­um, þar af einum lækni og þrír kaf­arar sem kenndu drengj­unum og þjálf­ara þeirra að kafa, en end­ur­koma þeirra er síð­asti angi aðgerð­anna.

Auglýsing

หมูป่า 12 ตัว และโค้ช ออกจากถ้ำแล้ว ปลอดภัยทุกคน เวลานี้รอรับมนุษย์กบ 4 คน ออกมาครับผม Hooyah

Posted by Thai NavySEAL on Tues­day, July 10, 2018



Björg­un­ar­að­gerð­irn­ar, sem hófust að fullu síð­asta sunnu­dag, hafa gengið framar björt­ustu von­um. Fjórum drengjum var bjargað úr hell­inum á sunnu­dag og fjórum til við­bótar í gær.

Tveir kaf­arar fylgdu hverjum dreng út. Allir þrír báru súr­efn­is­grímur og fikruðu þeir sig áfram eftir köðlum til að kom­ast í gegnum þröngt rým­ið. Talið var að hver ferð tæki um sex klukku­stundir og þurftu drengirnir að kafa, synda, vaða og klifra til að kom­ast út. Ekki liggja fyrir nán­ari upp­lýs­ingar um hvernig gekk að koma hverjum og einum út.

Stefnt var á að klára björg­un­ina í dag sem síðan tókst.

Einn tælenskur kaf­ari lést við björg­un­ar­að­gerð­irnar í síð­ustu viku.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent