Össur hagnast um 2,1 milljarð króna

Uppgjör Össurar fyrir annan ársfjórðungs skilaði miklum hagnaði sem jókst um helming frá því í sama tímabili og í fyrra. Vöxturinn er drifinn áfram af aukinni sölu dýrra nýsköpunarvara, sérstaklega í Kína og Ástralíu.

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar
Auglýsing

Hagn­aður Öss­urar nam tæpum 2,1 millj­arði íslenskra króna á öðrum árs­fjórð­ungi og jókst um tæpan helm­ing frá því á sama tíma­bili í fyrra. Vöxt­ur­inn er til­kom­inn vegna auk­innar sölu í dýrum nýsköp­un­ar­fyri­tækjum og var sér­stak­lega mik­ill í Kína og Ástr­al­íu. Þetta kemur fram í nýbirtu árs­fjórð­ungs­upp­gjöri fyr­ir­tæk­is­ins, sem birt­ist á vef dönsku kaup­hall­ar­innar í morgun.

Sam­hliða mik­illi hagn­að­ar­aukn­ingu jókst hagn­að­ar­hlut­fall fyr­ir­tæk­is­ins einnig úr 9% í 12% milli ára. Fram­legð­ar­hlut­fall fyr­ir­tæk­is­ins jókst einnig, en á nýliðnum árs­fjórð­ungi nam það 63% af tekj­um, miðað við 62% á sama tíma­bili í fyrra. 

Hand­bært fé frá rekstri helst óbreytt milli ann­ars árs­fjórð­ungs 2017 og 2018 í 23 millj­ónum Banda­ríkja­dala, en hlut­fall þess af sölu lækk­aði úr 16% í 15%. 

Auglýsing

Helsta ástæða hagn­að­ar­aukn­ingar Öss­urar er aukn­ing í sölu­tekjum fyr­ir­tæk­is­ins, en þær juk­ust úr 145 millj­ónir Banda­ríkja­dala í 158 millj­ón­ir. Það jafn­gildir 9% vexti í Banda­ríkja­döl­um. Sölu­aukn­ingin er drifin áfram af dýr­ari nýsköp­un­ar­vörum ásamt auk­inni sölu á spelkum og stuðn­ings­vörum, sér­stak­lega í Kína og Ástr­al­íu. Salan óx mest á Asíu-og Kyrra­hafs­mark­aðn­um, eða um 19%. Í Evr­ópu, Mið-Aust­ur­löndum og Afr­íku óx salan hins vegar um 7% og í Amer­íku óx hún aðeins um 2%. 

Í til­kynn­ing­unni segir Jón Sig­urðs­son, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, söl­una hafi auk­ist tölu­vert frá fyrsta árs­fjórð­ungi eins og við var búist. Tekju­vöxt­ur­inn hafi verið í takti við vænt­ing­ar, en fyr­ir­tækið heldur rekstr­ar­spá sinni fyrir árið 2018 óbreyttri. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent