Velta Kauphallarinnar gæti minnkað vegna minni umsvifa lífeyrissjóða

Lífeyrissjóðir ætla flestir að auka við erlendar fjárfestingar sínar í ár. Við það gæti heildarvelta Kauphallarinnar minnkað, en hún hefur lækkað um þriðjung milli júnímánaða 2017 og 2018.

Kauphöll Íslands á Suðurlandsbraut.
Kauphöll Íslands á Suðurlandsbraut.
Auglýsing

Líf­eyr­is­sjóð­irnir stefna allir að auk­inni hlut­deild erlendra fjár­fest­inga í ár, en sam­hliða því má búast við nokk­urri minnkun á veltu á íslenska hluta­bréfa­mark­aðn­um. Heild­ar­velta Kaup­hall­ar­innar í júní er þriðj­ungi minni en hún var á sama tíma í fyrra. 

Allt frá aflétt­ingu gjald­eyr­is­haft­anna hefur yfir­lýst stefna íslenskra líf­eyr­is­sjóða verið aðdreifa eigna­safn­inu sínu með því að auka við erlendar fjár­fest­ing­ar. Hvatt var til þeirrar stefnu í nið­ur­stöðum starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra í upp­hafi árs, en sam­kvæmt honum nemur eign­ar­hald líf­eyr­is­sjóð­anna þriðj­ungi af heild­ar­fjár­munum á Ísland­i.  

Í fjár­fest­ing­ar­stefnu 10 stærstu líf­eyr­is­sjóð­anna fyrir árið 2018 stefna þeir allir á að auka vægi erlendra eigna, auk þess sem þeir hafa hækkað efri vik­mörk fyrir hlut­deild þeirra. Sam­kvæmt fjár­fest­inga­stefnu Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna er stefnt að þriggja pró­sentu­stiga hækkun í hlut­deild erlendra eigna í ár, eða úr 25% í 28%. A-deild LSR stefnir á 30% hlut­deild erlendra eigna árið 2022 og 40% hlut­deild til lengri tíma, en hlut­deild sjóðs­ins við árs­lok 2017 var 22%. Stapi var hins vegar með 20,2% hlut­deild af erlendum hluta­bréfum í októ­ber í fyrra, en sjóð­ur­inn stefnir á 23% hlut­deild í lok árs. 

Auglýsing

Í maí síð­ast­liðnum námu heild­ar­eignir líf­eyr­is­sjóð­anna 4.057 millj­örð­um, en þar af voru 3.041 þeirra inn­lend­ar. Hlut­fall erlendra eigna líf­eyr­is­sjóð­anna nam því 25%, en það hefur auk­ist úr 21% við afnámi gjald­eyr­is­haft­anna í mars á síð­asta ári. 

Ef miðað er við óbreytta stærð eigna­safns líf­eyr­is­sjóð­anna myndi hvert pró­sentu­stig  í auk­inni hlut­deild þeirra í erlendum bréfum skila sér í 41 millj­arðs króna minni eign­ar­hlut­deild þeirra í Kaup­höll­inni. Pen­ing­inn sem upp á vantar til að hlut­fall erlendra fjár­fest­inga fari upp í lang­tíma­mark­mið margra þeirra, sem er 50%, nemur rúmum 1.000 millj­örðum króna. 

Þriðj­ungi minni velta í Kaup­höll­inni

­Sam­hliða auk­inni hlut­deild líf­eyr­is­sjóða í erlendum eignum á seinni hluta árs­ins í fyrra minnk­aði mark­aðsvelta skráðra fyr­ir­tækja tölu­vert. Á tíma­bil­inu jókst hlut­fall erlendra eigna sjóð­anna úr 22% upp í 25%, en heild­ar­velta hluta­bréfa­við­skipta í Kaup­höll­inni minnk­aði úr tæpum 50 millj­örðum niður í 33 millj­arða. Í júní nam veltan einnig tæpum 33 millj­örð­um, en það er rúmum þriðj­ungi minna en á sama tíma í fyrra. 

Ekki  hafa enn feng­ist tölur um erlendar fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóð­anna, en hlut­deild þeirra hefur verið í kringum tæp 25% frá jan­úar til maí. Sömu­leiðis hafa geng­is­breyt­ingar krónu gagn­vart erlendum gjald­miðlum verið til­tölu­lega litl­ar, en krónan styrkt­ist um 1,7% á móti evru á sama tíma­bil­i. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent