Spennan magnast vegna tollastríðs Trumps

Evrópu- og Asíuríki ætla að stilla saman strengi til að bregðast við tollastefnu Trumps.

Trump
Auglýsing

Evr­ópu­sam­bandið og leið­togar stærstu við­skipta­velda Asíu vilja eiga form­legar við­ræður til að ræða við­brögð við tolla­stríði Trumps Banda­ríkja­for­seta.

Frum­kvæðið að tolla­stríð­inu sem þegar er skollið á hefur komið frá Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seta, en Evr­ópu­sam­bandið og helstu leið­togar Asíu­ríkja, þar á meðal Kína, vilja hefja form­legar við­ræður til að kanna mót­væg­is­að­gerðir gegn tolla­hækk­unum Banda­ríkja­stjórn­ar.

Bloomberg greindi frá því í dag að stefnt sé að form­legum fundi með full­trúum frá 51 einni þjóð í Evr­ópu og Asíu, 18. og 19. októ­ber næst­kom­andi. Á þeim fundi verður rætt um við­brögð við þeim aðgerðum sem Banda­ríkja­stjórn hefur þegar gripið til, sem eru tollar á inn­fluttar vörur frá mörgum af helstu við­skipta­löndum Banda­ríkj­anna og síðan einnig ákvörð­unin um að draga Banda­ríkin út úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu, sem miðar að því að draga úr mengun sam­kvæmt tíma­settum mark­miðum til að vinna gegn hlýnun jarðar af manna­völd­um.

Auglýsing

Trump hefur hótað því að setja á tolla á Kína og fleiri Asíu­ríki, sem ná til við­skipta upp á 500 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 53 þús­und millj­arða króna.

Það sama á við um Evr­ópu­ríki, en tollar sem lagðir hafa verið á málm­inn­flutn­ing til Banda­ríkj­anna, stál og ál, ná til Evr­ópu­ríkja.

Svo virð­ist sem Evr­ópu­sam­bandið og Asíu­ríki séu nú að stilla saman strengi, og ætli sér að grípa til sam­stilltra aðgerða, til að bregð­ast við tolla­stríði Trumps.

Meg­in­mark­mið Trumps með toll­unum og höftum á við­skipta­frelsi, er að örva hag­kerfið heima fyr­ir, en afar deildar mein­ingar eru um hvort það tak­ist. Til lengdar lit­ið, er talið að tolla­stríðið geti leitt til þess að allir sem verða fyrir áhrifum tapi á því, og í versta falli geti það leitt til félags­legs óstöð­ug­leika.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent