Ísland með mesta deilihagkerfið í heimi

Þróun og vægi deilihagkerfisins hér á landi er mun meira en í öðrum löndum, samkvæmt nýrri mælingu. Þar er helsta ástæðan bak við sérstöðu Íslands sögð vera vegna ferðaþjónustunnar.á

Mikill fjöldi ferðamanna hér á landi er sögð vera meginástæða mikils umfangs deilihagkerfisins.
Mikill fjöldi ferðamanna hér á landi er sögð vera meginástæða mikils umfangs deilihagkerfisins.
Auglýsing

Umfang deili­hag­kerf­is­ins á Íslandi er mest í heimi, sam­kvæmt nýjum mæli­kvarða frá sænsku hug­veit­unn­i Timbro. Hug­veitan nefnir sér­stak­lega þátt ferða­þjón­ust­unnar í þessu sam­hengi og segir hana hafa verið grund­völl fyrir vöxt deili­hag­kerf­is­ins hér á landi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Timbro.

Mæli­kvarð­inn, Timbro S­har­ing Economy Index (TSEI), var mældur í alls 213 löndum og byggir á rann­sókn á 4500 fyr­ir­tækj­um. 286 þess­arra ­fyr­ir­tækja eru skil­greind sem deili­hag­kerf­is­fyr­ir­tæki út frá skil­grein­ingu hug­veit­unn­ar. Stærst þeirra var A­ir­bnb, með um það bil 1,5 milljón virkra gest­gjafa. Löndin voru svo röðuð upp eftir TSEI-­mæli­kvarð­an­um, en þar var Ísland langefst.

Smá­ríki voru öll áber­andi í efstu sætum list­ans, en á  eftir Íslandi fylgd­u T­urks-og Caicos­eyj­ar, Malta, Svart­fjalla­land og Nýja-­Sjá­land. Meðal iðn­ríkja sem skor­uðu lægst á list­anum voru svo Lúx­em­borg og Slóvakía. 

Auglýsing

Ferða­þjón­ustan meg­in­þátt­ur­inn

Sam­kvæmt Timbro ein­kennir mik­ill ferða­manna­iðn­að­ur, góðir inn­viðir í net­þjón­ustu og efna­hags­legt frelsi lönd með háa TSEI-­ein­kunn. Hug­veitan skoð­aði einnig helstu áhrifa­þætt­ina á Íslandi, en sam­kvæmt henni má fyrst og fremst skýra stærð deili­hag­kerf­is­ins með þeim mikla fjölda ferða­manna sem hingað sækja á ári hverju. Einnig segir í skýrsl­unni að sveigj­an­leiki deili­hag­kerf­is­ins hafi verið meg­in­þáttur í því að halda í við þá miklu eft­ir­spurn­ar­aukn­ingu í íslenska þjón­ustu sem átti sér stað fyrir tæpum ára­tug með risi ferða­þjón­ust­unnar og þannig stuðlað að góð­ær­inu sem fylgdi því.

Aðal­höf­undur skýrsl­unnar er hag­fræð­ing­ur­inn Alex­and­er Funcke hjá háskól­anum í Penn­syl­van­íu, en Gylfi Ólafs­son, for­stjóri Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra, vann einnig að henni. Skýrslan var svo gefin út af sænsku hug­veit­unn­i Timbro, sem sér­hæfir sig í málum tengd­um ein­stak­lings-og ­mark­aðs­frelsi. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent