Tekur við keflinu á „stærsta skemmtistað í heimi“

Nýr forstjóri Nova segir spennandi tíma framundan hjá Nova. Fráfarandi forstjóri; Liv Bergþórsdóttir, hefur stýrt félaginu um árabil. Efnahagur félagsins er traustur, en hagnaður jókst í fyrra frá árinu 2016 um tæplega 20 prósent.

Margrét
Auglýsing

„Nú er bara að við­halda stemmn­ing­unni á stærsta skemmti­stað í heim­i,“ segir Mar­grét Tryggva­dótt­ir, nýráð­inn for­stjóri fjar­skipta- og upp­lýs­inga­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Nova.

Hún tekur við stjórn­ar­taumunum úr höndum Livar Berg­þórs­dótt­ur, sem hefur verið for­stjóri Nova í 12 ár og leitt upp­bygg­ingu félags­ins á Íslandi. Þær hafa starfað náið saman um ára­bil, en greint var frá for­stjóra­skipt­unum í morg­un. 

Liv og Jóakim Reyn­is­­son, frá­­far­andi fram­­kvæmda­­stjóri tækn­i­s­viðs Nova, láta af störfum hjá félag­inu en munu áfram gegna ráð­gjaf­­ar­hlut­verki og vera nýjum for­­stjóra innan handar næstu mán­uði.

Auglýsing

Mar­grét seg­ist hlakka til þess að takast á við þá áskorun að stýra Nova. „Þetta er mikil áskor­un, en um leið eru tæki­færin mikil fyrir Nova inn í fram­tíð­ina,“ segir Mar­grét.

Liv og Margrét Tryggvadóttir.Liv seg­ist á Face­book síðu sinni þakk­lát fyrir árin hjá Nova. „Takk öll fyrir sam­starf­ið, vin­átt­una og gleð­ina! Frá­bær 12 ár með frá­bæru fólki! Nú er Magga komin í skóna mína og tekur næsta sprett. Hlakka til að fylgj­ast með ykkur gera stærsta skemmti­stað í heimi en stærri - hækkið í græj­un­um! Takk fyrir mig,“ segir Liv.

Rekstur Nova gekk vel í fyrra en ólíkt helstu sam­keppn­is­að­ilum félags­ins, Voda­fone (Sýn) og Sím­an­um, er félagið ekki skráð á markað hér á landi.

Félagið jók hagnað sinn um tæp 19 pró­sent á milli ára sam­kvæmt árs­reikn­ingi félags­ins. Nam hagn­að­ur­inn fyrir árið 2017 1,45 millj­örðum króna sam­an­borið við 1,23 millj­arða árið 2016.

EBIT­DA, rekstr­ar­hagn­aður fyrir afskriftir og fjár­magnsliði, nam rúm­lega 2,4 millj­örðum en var árið 2016 tæp­lega 2,3 millj­arðar króna.

Þá juk­ust tekjur félags­ins lít­il­lega á milli ára, en þær námu í fyrra 8,8 millj­örð­um.

Í árs­reikn­ingi félags­ins kemur fram að stjórn þess leggi til að greiddur verði út arður til hlut­hafa vegna árs­ins 2017. Arð­greiðslan nemur 1,4 millj­arði króna.

Stærsti hlut­hafi Nova er félagið Plat­inum Nova í eigu Pt. Capital, Novator og stjórn­enda Nova. Gengið var frá sölu á 50 pró­senta hlut í félag­inu fyrir um ári síðan til banda­ríska eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins PT Capi­tal Advis­ors, sem einnig á hlut í KEA-hót­el­u­m. 

Eigið fé félags­ins var í lok árs tæp­lega 5 millj­arðar króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent