Hlutabréf í Skeljungi hækka

Hlutabréf í Skeljungi hækkuðu um rúm 9 prósent í rúmlega 400 milljóna króna viðskiptum í morgun.

skeljungur
Auglýsing

Hluta­bréf í Skelj­ungi hækk­uðu um rúm 9 pró­sent í rúm­lega 400 millj­óna króna við­skiptum í morg­un. Skelj­ungur sendi í gær frá sér afkomutil­kynn­ingu þar sem fram kemur að rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magnsliði, afskriftir og skatta (EBIT­DA) félags­ins verður lík­leg­ast 300 millj­ónum krónum meiri á árinu 2018 en áður hafði verið áætl­að. Þetta kemur fram í frétt RÚV í dag.

Í afkomutil­kynn­ing­unni kemur fram að félagið hafi ákveðið miðað við þær for­sendur sem nú liggja fyrir að hækka EBITDA spá árs­ins 2018 úr 2.800 til 3.000 millj­ónir króna í 3.100 til 3.300 millj­ónir króna en að áætlun varð­andi fjár­fest­ingar hald­ist óbreytt, það er 750 til 850 millj­ónir króna.

„Við vinnslu á árs­hluta­upp­gjöri og upp­færðri áætl­ana­gerð fyrir árið 2018 kom í ljós að horfur eru á að afkoma árs­ins í heild verði betri en áætl­anir gerðu ráð fyr­ir. Helsta ástæða fyrir betri afkomu á fyrri helm­ingi árs­ins en gert hafði verið ráð fyrir helg­ast af betri afkomu af elds­neyt­is­sölu. Meiri sala var á flug­elds­neyti og á elds­neyti til erlendra skipa en gert hafði verið ráð fyr­ir. Þá hefur áætlun félags­ins fyrir seinni hluta árs­ins verið hækkuð í takt við betri horf­ur.“

Auglýsing

Jafn­framt er fyr­ir­vari um að breyt­ingar á EBITDA spánni séu ekki byggðar á end­an­legu upp­gjöri, end­ur­skoð­uðum eða könn­uðum nið­ur­stöð­um. Skelj­ungur vinni enn að árs­hluta­upp­gjöri og for­sendur og aðstæður geti tekið breyt­ingum og þar af leið­andi geti afkoma félags­ins af fyrstu sex mán­uðum árs­ins, sem og vænt árs­af­koma félags­ins, orðið frá­brugðin núver­andi horf­um.

Félagið mun birta upp­gjör fyrri árs­hluta 2018 eftir lokun mark­aða þriðju­dag­inn 28. ágúst næst­kom­andi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent