Segir fjölmiðlamenn eins og klappstýrur ásakana um óviðeigandi hegðun

Brynjar Níelsson segir að nú þyki ekkert tiltökumál að koma fram opinberlega og saka mann og annan um hvers kyns brot eða óviðeigandi hegðun, sem áttu að vera framin fyrir árum eða áratugum síðan og með því tvístra fjölskyldum og eyðileggja líf manna.

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.
Auglýsing

Brynjar Níels­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir í stöðu­upp­færslu á Face­book­síðu sinni í dag að nú þyki ekk­ert til­töku­mál að koma fram opin­ber­lega og saka mann og annan um hvers kyns brot eða óvið­eig­andi hegð­un, sem áttu að vera framin fyrir árum eða ára­tugum síðan og með því tvístra fjöl­skyldum og eyði­leggja líf manna. 

Hann segir enn fremur að fjöl­miðl­ar, sem trúi að þeir séu á vegum almenn­ings og sér­stakir vernd­arar lýð­ræðis og rétt­ar­rík­is­ins, stígi ekki niður fæti, heldur þvert á móti og leggi rauðan dregil fyrir þá sem koma fram með ásak­anir af þessu tagi.

Gagn­rýni Brynjars kemur sama dag og við­tal DV við frú Agn­esi Sig­urð­ar­dóttur biskup Íslands birt­ist og umfjöllun um mál fyrr­ver­andi dóm­kirkju­prests; hvernig kirkjan tók á hans máli eftir að hann við­ur­kenndi kyn­ferð­is­brot gegn barni um miðja síð­ustu öld.

Auglýsing

Brynjar segir að kærur til lög­reglu með til­heyr­andi rann­sókn þar sem sak­born­ingr geta varið sig og hugs­an­lega sannað sak­leysi sitt, sé alger óþarfi. „Dóm­stóll göt­unnar lætur reglur rétt­ar­rík­is­ins ekki trufla sig og sak­fellir umsvifa­laust og jafn­vel þá sem hafa verið sýkn­aðir fyrir dómi.“

Hann segir jafn­framt að fjöl­miðla­menn séu eins og hverjar aðrar klapp­stýrur í þessu ofstæki. Stjórn­mála­mennn þegi þunnu hljóði, að minnsta kosti þeir sem sé umhugað um end­ur­kjör. „Lítið heyr­ist í lög­manna­stétt­inni, sem í sögu­legu ljósi hafa verið helstu tals­menn rétt­ar­rík­is­ins. Og ekki heyr­ist boffs í þess­ari háskóla­aka­dem­íu, sem virð­ist vera á svip­uðu róli og fjöl­miðl­ar.“

Í lok færsl­unnar ráð­leggur Brynjar þeim sem vilja halda starfi sínu og jafn­vel huga að starfs­frama að læka ekki þessa færslu.

Nú um stundir þykir ekk­ert til­töku­mál að koma fram opin­ber­lega og saka mann og annan um hvers kyns brot eða óvið­eig­and­i...

Posted by Brynjar Níels­son on Fri­day, Aug­ust 24, 2018


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent