Björgólfur hættir sem forstjóri Icelandair Group

Afkoman verður lakari en spár og áætlanir gerðu ráð fyrir.

Björgólfur Jóhannsson
Auglýsing

Björgólfur Jóhanns­son, sem verið hefur for­stjóri Icelandair Group und­an­farin ár, er hættur störfum hjá félag­inu. Mark­aðsvirði félags­ins hefur hrunið að und­an­förnu, en og hefur afkoman verið slak­ari en spár gerðu ráð fyr­ir. 

Sam­kvæmt til­kynn­ingu til kaup­hallar, og ­upp­færðri afkomu­spá, mun afkoma árs­ins verða lægri en gert var ráð fyr­ir. Félagið áætlar að EBITDA árs­ins 2018 verði á bil­inu 80-100 millj­ónir USD, eða sem nemur um 8,5 til 11 millj­örðum króna. 

„Í fyrsta lagi gerðum við enn ráð fyrir því við gerð sein­ustu afkomu­spár að með­al­far­gjöld á sein­ustu mán­uðum árs­ins myndu hækka, meðal ann­ars í takt við kostn­að­ar­hækk­anir flug­fé­laga. Við teljum nú að þessar hækk­anir muni skila sér síð­ar, þ.e. ekki fyrr en á árinu 2019.

Auglýsing

Í öðru lagi hefur inn­leið­ing breyt­inga sem gerðar voru í byrjun sum­ars 2017 á sölu- og mark­aðs­starfi félags­ins ekki gengið nægi­lega vel fyrir sig auk þess sem gerðar voru breyt­ingar á leið­ar­kerfi félags­ins í byrjun þessa árs sem hafa valdið misvægi á milli fram­boðs fluga til Evr­ópu ann­ars vegar og Norð­ur­-Am­er­íku hins veg­ar. Vegna þessa hafa spálík­ön, sem meðal ann­ars byggja á sögu­legri þró­un, ekki virkað sem skyldi og er upp­færð tekju­spá lægri en fyrri spá gerði ráð fyr­ir.

Það er mat okkar að lækkun far­þega­tekna Icelandair sem rekja megi til fyrr­greindra breyt­inga sé á bil­inu 5-8% (50-80 millj­ónir USD) á árs­grund­velli. Eins og kom fram í upp­lýs­ingum sem félagið sendi frá sér í tengslum við birt­ingu upp­gjörs á afkomu ann­ars árs­fjórð­ungs, hefur þegar verið gripið til aðgerða til að bregð­ast við þess­ari þró­un. Þær aðgerðir eru farnar að skila árangri en við áætlum að það muni taka nokkra mán­uði að sjá áhrif þeirra í afkomu félags­ins. Við metum þessi nei­kvæðu áhrif á tekjur á þessu ári sem ein­skipt­isliði.

Þær ákvarð­anir sem lýst er hér að ofan eru teknar á minni vakt. Það er ljóst að þær hafa valdið félag­inu fjár­hags­legu tjóni á þessu ári. Ég ber sem for­stjóri félags­ins ábyrgð gagn­vart stjórn og hlut­höf­um. Fyrr í dag tjáði ég stjórn að ég óskaði efir því að láta af starfi for­stjóra Icelandair Group. Þó að vissu­lega sé búið að taka á fyrr­nefndum vanda­málum þá er það ábyrgð­ar­hluti að hafa ekki fylgt breyt­ing­unum eftir með full­nægj­andi hætti og brugð­ist fyrr við. Þá ábyrgð tel ég rétt að axla og læt því af störfum sem for­stjóri félags­ins,“ segir Björgólf­ur. 

Stjórn­ar­for­maður Icelandair Group, Úlfar Stein­dórs­son, segir í yfir­lýs­ingu að það lýsi Björgólfi vel, að hann sé til­bú­inn að axla ábyrgð með þessum hætt­i. „­Björgólfur hefur verið for­stjóri Icelandair Group í yfir tíu ár, á mesta vaxt­ar­skeiði félags­ins. Hann leiddi fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu þess og hefur alla tíð lagt áherslu á ábyrgan rekstur og að vöxtur félags­ins sé arð­bær til lengri tíma lit­ið. Hann skilur við fjár­hags­lega sterkt félag, Icelandair Group var með 251 milljón USD í hand­bæru fé við lok ann­ars árs­fjórð­ungs og 530 millj­ónir USD í eigin fé.  Mér finnst það lýsa per­sónu Björg­ólfs vel að axla ábyrgð þegar betur hefði mátt gera. Að beiðni stjórnar mun Björgólfur vera stjórn og stjórn­endum til ráð­gjaf­ar. Bogi Nils Boga­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála félags­ins hefur fall­ist á ósk stjórnar um að gegna stöðu for­stjóra tíma­bund­ið. Stjórnin mun gefa sér góðan tíma til að finna félag­inu for­stjóra til fram­tíð­ar­. Ég vil fyrir hönd stjórnar þakka Björgólfi kær­lega fyrir frá­bært sam­starf og óska honum vel­farn­aðar í þeim verk­efnum sem hann tekur sér fyrir hend­ur.“

Mark­aðsvirði Icelandair er nú um 40 millj­arðar króna og hefur lækkað mikið und­an­farna mán­uði. Í apríl 2016 náði það hæstu hæð­um, þegar það var 189 millj­arðar króna. Eigið fé félags­ins var um mitt þetta ár 55 millj­arðar króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent