Þuríður Harpa: Fjármálaráðherra úr tengslum við veruleikann sem blasir við flestum

Formaður Öryrkjabandalagsins skrifar opið bréf til Bjarna Benediktssonar. Hún segist ekki geta skilið aðgerðar- og skeytingarleysi hans á annan hátt en að hann sé algjörlega úr tengslum við veruleikann sem blasir við flestum öðrum.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands.
Auglýsing

Þur­íður Harpa Sig­urð­ar­dótt­ir, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands, skrifar opið bréf til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­son­ar, og birtir í dag. Hún seg­ist meðal ann­ars ekki geta skilið aðgerð­ar­leysi og skeyt­ing­ar­leysi ráð­herra á annan hátt en að hann sé algjör­lega úr tengslum við veru­leik­ann sem blasir við flestum öðrum: Að fatlað og lang­veikt fólk býr við mikla fátækt.

„Það hlýtur að vera, því, ann­ars hefðir þú senni­lega þegar séð til þess að fólkið með lægstu tekj­urnar geti raun­veru­lega lifað af þeim – rétt eins og þú hefur sýnt í orði og verki að þeir sem mest hafa fyrir skuli ávallt fá meira,“ segir hún í bréf­in­u. 

Hún seg­ist þó vera bjart­sýn að eðl­is­fari og leggi alltaf af stað með það að hafa trú á fólki, trúa því að þeir sem velj­ast til starfa fyrir þjóð­ina sinni starfi sínu af alúð, heið­ar­leika og rétt­sýni. Hún segir að jákvæðar aðgerðir stjórn­valda í garð örorku­líf­eyr­is­þega séu nauð­syn­legar strax, ára­tuga þol­in­mæði þeirra sé á enda.

Auglýsing

Öryrkjar hafa setið eftir

Þur­íður Harpa segir að öryrkjar sé sá hópur í sam­fé­lag­inu sem hefur algjör­lega setið eftir þegar kjör ann­arra hafa verið leið­rétt. Þetta sé að stórum hluta fátækt fólk sem bíður eftir rétt­læti.

„Hátt­virti ráð­herra, í dag er brýn nauð­syn að for­gangs­raða í þágu þeirra sem minnsta fram­færslu hafa, í þágu þeirra lægst laun­uðu, í þágu þeirra sem hrekj­ast um í vel­ferð­ar­kerfi sem ekki dugar nokkrum manni. Í dag er ekki þörf á að dæla pen­ingum rík­is­ins í vasa þeirra sem hæstu launin hafa. Það er ekki for­gangs­at­riði, vegna þess að það fólk lifir vel af launum sín­um. Getum við verið sam­mála, Bjarni, um að brýnna er að veita vatni á þurran gróður en að bera í bakka­full­ann læk­inn?

Þínu emb­ætti fylgir gríð­ar­leg ábyrgð. Þínar ákvarð­anir hafa áhrif á lands­menn alla. Ekki bara þá rík­ustu heldur líka þá allra fátæk­ustu. Þú ert í því vanda­sama hlut­verki að sjá til þess að þeir íbúar lands­ins sem búa við lægstu fram­færsl­una, geti lifað af henni. Hvað gerir þú til þess að svo megi verða? Í dag býr fjöldi fólks - „al­vöru öryrkjar“ – við þá ang­ist að eiga ekki fyrir nauð­synjum og vera eigna­laus með öllu,“ segir Þur­íður Harpa. 

Hún tekur enn fremur fram að áhyggjur ráð­herra af því að fólk/­ör­yrkjar vilji ekki að vinna séu óþarf­ar. Fyrsta skrefið því til sönn­unar væri að afnema „krónu á móti krónu“ skerð­ing­una strax. Með því móti myndi hann gera mörgum örorku­líf­eyr­is­þegum kleift að stunda vinnu. Þannig fengi fólk sjálft fyrstu 60.000 krón­urnar af vinnu­launum sínum í stað þess að þetta fé fari beina leið aftur í rík­is­kass­ann í formi skatta og skerð­inga.

Hægt er að lesa bréfið í heild sinni á vef­síðu ÖSÍ. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent