Stuðningsfólk Viðreisnar, Flokks fólksins og Pírata „snúsa“ mest

Alls „snúsar“ (e. snooze) hátt í helmingur þjóðarinnar einu sinni eða oftar, eða 48 prósent, á morgnana samkvæmt nýrri könnun MMR.

Þótt margir Danir séu skráðir einir í búsetu þá þýðir það ekki að þeir sofi allir einir. Margir þeirra eiga auðvitað kærustur eða kærasta.
Auglýsing

Alls „snús­ar“ (e. snooze) hátt í helm­ingur þjóð­ar­inn­ar, eða 48 pró­sent, á morgn­ana sam­kvæmt nýrri könnun MMR. Að snúsa er að ýta á takk­ann á vekjara­klukk­unni sem frestar hring­ing­unni um nokkrar mín­út­ur. Þau 48 pró­sent sem snús­uðu gerðu það einu sinni eða oft­ar, þar af 17 pró­sent yfir­leitt einu sinni en sex pró­sent fimm sinnum eða oft­ar. Þá sögð­ust 39 pró­sent yfir­leitt ekki nota snús takk­ann og 13 pró­sent svar­enda nota ekki vekjara­klukku til að fara á fætur á morgn­ana.

Körlum reynd­ist öllu erf­ið­ara að kom­ast fram úr rúm­inu á morgn­anna en 8 pró­sent þeirra sögð­ust að jafn­aði „snúsa“ fimm sinnum eða oftar á morgn­anna, sam­an­borið við 4 pró­sent kvenna. Mun var einnig að sjá á „snús“ venjum eftir aldri en lands­menn undir þrí­tugu „snús­uðu“ meira heldur en aðrir ald­urs­hóp­ar. Þá kváð­ust 20 pró­sent þeirra undir þrí­tugu „snúsa“ fimm sinnum eða oftar og aðeins 23 pró­sent þeirra kváð­ust yfir­leitt ekki ýta á „snús“ takk­ann, sam­an­borið við 53 pró­sent þeirra á aldr­inum 50-67 ára. Af þeim 68 ára og eldri voru 49 pró­sent sem ekki nota vekjara­klukku og ein­ungis 15 pró­sent sem sögð­ust „snúsa“ einu sinni eða tvisvar.

Af þeim sem voru búsettir á lands­byggð­inni kváð­ust 42 pró­sent yfir­leitt ekki „snúsa“, sam­an­borið við 37 pró­sent þeirra sem búsett voru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þá voru íbúar lands­byggð­ar­innar (19 pró­sent) lík­legri en íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins (10 pró­sent) til að nota ekki vekjara­klukku.

Auglýsing

Náms­menn virt­ust eiga erf­ið­ustu morgn­anna af öllum lýð­fræði­hópum en tæp 66 pró­sent þeirra sögð­ust „snúsa“ að minnsta kosti einu sinni og 20 pró­sent sögð­ust „snúsa“ fimm sinnum eða oft­ar. Vilja­styrk­ur­inn til að ýta ekki á „snús“ takk­ann reynd­ist hins vegar mestur hjá stjórn­endum og æðstu emb­ætt­is­mönnum en rúm 53 pró­sent þeirra sögð­ust yfir­leitt ekki falla í „snús“ gildr­una.

Af stuðn­ings­fólki Fram­sókn­ar­flokks­ins kváð­ust 60 pró­sent ekki „snúsa“ á morgn­anna sem er hærra hlut­fall en hjá stuðn­ings­fólki ann­arra flokka. Ein­ungis 36 pró­sent stuðn­ings­fólks Fram­sóknar kvaðst „snúsa“ einu sinni eða oftar á morgn­anna en mestu „snús­ar­arn­ir“ reynd­ust stuðn­ings­fólk Flokks fólks­ins (57 pró­sent), Við­reisnar (56 pró­sent) og Pírata (55 pró­sent). Athygli vekur að stuðn­ings­fólk Við­reisnar var sér­lega kræft í „snús­inu“ en 25 pró­sent þeirra kváð­ust „snúsa” fimm sinnum eða oftar á morgn­anna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent