Hagvöxtur var hærri í fyrra en áður var áætlað

Hagstofan segir að hagvöxtur á Íslandi í fyrra hafi verið fjögur prósent, ekki 3,6 prósent líkt og áður hafði verið gefið út. Á fyrstu sex mánuðum ársins 2018 mældist hagvöxtur 6,4 prósent.

Útflutningur jókst um 5,5 prósent í fyrra.
Útflutningur jókst um 5,5 prósent í fyrra.
Auglýsing

Alls var hag­vöxtur hér­lendis á árinu 2017 fjögur pró­sent, en ekki 3,6 pró­sent líkt og áður birtar nið­ur­stöður höfðu gefið til kynna. Lands­fram­leiðslan er nú 15,2 pró­sent meiri en hún var árið 2008. Þetta kemur fram í end­ur­skoð­uðum þjóð­hags­reikn­ingi Hag­stofu Íslands.

Þar segir einnig að einka­neysla og fjár­fest­ing hafi vegið þyngst í vexti lands­fram­leiðslu á síð­asta ári. Einka­neyslan jókst um 7,9 pró­sent og fjár­fest­ing um 9,5 pró­sent. Þjóð­ar­út­gjöld juk­ust á sama tíma um sjö pró­sent.

Í sam­an­tekt þjóð­hags­reikn­ings segir að útflutn­ingur hafi verið 5,5 pró­sent á árinu 2017 og að umtals­vert hafi hægst á vexti hans frá fyrra ári, þegar útflutn­ingur var 10,9 pró­sent. Inn­flutn­ingur jókst um 12,5 pró­sent og þrátt fyrir að afgangur af vöru- og þjón­ustu­við­skiptum hefði verið 106,8 millj­arðar króna í fyrra hefði utan­rík­is­verslun dregið úr hag­vexti.

Auglýsing

Þar kemur einnig fram að afgangur af „launa- og fjár­eigna­tekjum frá útlöndum nam um 1,5 millj­örðum króna á síð­asta ári sam­an­borið við 44,8 millj­arða árið 2016 en það var í fyrsta skipti frá því að gerð þjóð­hags­reikn­inga hófst árið 1945 að afgangur mæld­ist af launa- og fjár­eigna­tekjum frá útlönd­um.“

Hag­vöxtur á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins 2018 var 7,2 pró­sent og lands­fram­leiðslan á fyrstu sex mán­uðum árs­ins jókst um 6,4 pró­sent að raun­gildi sam­an­borin við fyrri helm­ing árs­ins 2017.

Seðla­banki Íslands gerir ráð fyrir því að hag­vöxtur á öllu árinu 2018 verði 3,6 pró­sent og því má vænta þess að hag­vöxtur verði minni á síð­ari hluta árs­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent