Sálfræðiþjónusta aukin fyrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn

Samkomulag um sálfræðiþjónustu eftir stór áföll fyrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hefur verið samþykkt. Formaður LSS segir þetta mikilvægt skref.

Slökkviliðsmenn að störfum.
Slökkviliðsmenn að störfum.
Auglýsing

Sam­komu­lag um sál­fræði­þjón­ustu eftir stór áföll fyrir slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­menn hefur verið sam­þykkt milli Sam­bands íslenskra sveit­ar­fé­laga og LSS, Lands­sam­bands slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna. Frá þessu er greint í frétt á vef­síðu LSS.

Í sam­komu­lag­inu kemur fram að greiður og tryggur aðgangur að sál­fræði­þjón­ustu sé lyk­il­at­riði fyrir slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­menn, sem í dag­legum störfum þurfa að glíma við stór áföll, slys og dauðs­föll.

„Í þessu sam­komu­lagi felst við­ur­kenn­ing á því hversu mik­il­vægt það er að þessar stéttir fái full­nægj­andi sál­fræði­legan stuðn­ing strax í kjöl­far stórra áfalla, segir Jón Guð­laugs­son, vara­for­maður Félags slökkvi­liðs­stjóra á Íslandi.

Auglýsing

Sam­komu­lagið felur í sér að slökkvi­liðs­stjórar geta óskað eftir sál­fræði­þjón­ustu þegar þeir telja þörf á fyrir starfs­menn þeirra og það sama gildir um sjúkra­flutn­inga­menn. Lands­sam­band Slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna mun einnig hvetja ríkið til þess að veita sjúkra­flutn­inga­mönnum sem starfa á þess vegum sömu þjón­ust­u. 

Þá hefur Neyð­ar­línan sam­þykkt að inn­leiða ferli sem á að virkja sál­frænan stuðn­ing við vissar aðstæð­ur. Um er að ræða til­rauna­verk­efni sem verður end­ur­metið um ára­mót.

Magnús Smári Smára­son, for­maður Lands­sam­bands slökkvið­liðs- og sjúkra­flutn­inga­manna, fagnar sam­komu­lag­inu og seg­ist von­ast til þess að fá svar sem allra fyrst frá rík­inu því þetta mál brenni á þessum stéttum sem dag­lega horfast í augu við mjög erf­iðar aðstæð­ur, sem oft er erfitt að vinna úr sem ein­stak­ling­ur. „Þetta er afar mik­il­vægt skref í heild­rænni hugsun um vel­ferð okkar starfs­manna því eins og almenn­ingur veit þá geta bæði áföll og and­legt álag leitt af sér fjöl­marga kvilla með ófyr­ir­sjá­an­legum afleið­ing­um,“ segir hann.

Samn­ingur hefur verið gerður við Sál­fræð­ing­ana á Lyng­hálsi til að sinna þess­ari þjón­ustu á lands­vísu, segir í frétt­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent