Sjálfstæðisflokkur mælist með 21,3 prósent fylgi – Samfylking með 19,8 prósent

Þeir þrír stjórnarandstöðuflokkar sem hafa bætt við sig fylgi samkvæmt könnunum MMR frá síðustu kosningum mælast nú með meira samanlagt fylgi en ríkisstjórnarflokkarnir.

Fylgi stjórnmálaflokkanna hefur breyst umtalsvert frá því að formenn þeirra mættust í kappræðum í aðdraganda síðustu kosninga.
Fylgi stjórnmálaflokkanna hefur breyst umtalsvert frá því að formenn þeirra mættust í kappræðum í aðdraganda síðustu kosninga.
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærsti flokkur lands­ins í nýrri skoð­ana­könnun MMR sem birt var í dag. Fylgi flokks­ins mælst 21,3 pró­sent. Það er umtals­vert minna en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum fyrir tæpum ell­efu mán­uðum síðan þegar hann fékk 25,2 pró­sent.

Sam­fylk­ingin mælist næst stærsti flokkur lands­ins með 19,8 pró­sent fylgi. Það er 7,7 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum haustið 2017. Fylgi flokks­ins hefur því auk­ist um tæp 64 pró­sent á innan við ári, sam­kvæmt nið­ur­stöðu könn­un­ar­inn­ar.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn heldur áfram að drag­ast saman

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír mæl­ast sam­tals með 40,5 pró­senta fylgi og stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist á svip­uðum slóð­um, eða 41,1 pró­sent. Þeir hafa allir tapað umtals­verðu fylgi frá síð­ustu kosn­ingum sam­kvæmt könnun MMR.

Auglýsing

Vinstri græn hafa tapað mestu, eða 5,8 pró­sentu­stig­um. Flokk­ur­inn mælist nú með 11,1 pró­sent fylgi og þriðj­ungur þeirra sem kusu hann í októ­ber 2017 myndu ekki gera það í dag. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 8,1 pró­sent fylgi en fékk 10,7 pró­sent þegar talið var upp úr köss­unum í fyrra.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hefur einnig dalað með hverri könn­un­inni sem gerð er. Um miðjan des­em­ber 2017 mæld­ist hann 66,7 pró­sent hjá MMR en er nú, líkt og áður sagði, 41,1 pró­sent.

Þrír and­stöðu­flokkar bæta við sig

Af fimm flokkum stjórn­ar­and­stöðu mæl­ast þrír með meira fylgi en í síð­ustu kosn­ingum en tveir með minna. Sam­fylk­ingin hefur tekið mest til sín og myndi fá 19,8 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag. Píratar mæl­ast með 13,2 pró­sent fylgi, sem er fjórum pró­sentu­stigum meira en þeir fengu haustið 2017, og Við­reisn mælist með 7,9 pró­sent fylgi, eða 1,2 pró­sentu­stigum meira en í síð­ustu kosn­ing­um. Sam­an­lagt hafa þessir þrír flokkar bætt við sig 12,9 pró­sentu­stigum á síð­ustu tæpu ell­efu mán­uðum og myndu fá 40,9 pró­sent atkvæða ef kosið yrði nú, miðað við nið­ur­stöðu MMR. Þeir eru því með meira sam­an­lagt fylgi en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír.

Mið­flokk­ur­inn mælist í kjör­fylgi, er nú með 10,8 pró­sent fylgi en fékk 10,9 pró­sent í fyrra. Flokkur fólks­ins dalar hins vegar frá kosn­ingum og myndi nú fá 5,3 pró­sent í stað 6,9 pró­senta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent