Mörg hundruð milljarða verðmæti í aflaheimildum

Verðmatið á aflaheimildum Ögurvíkur, í fyrirhuguðum kaupum HB Granda á félaginu, gefur vísbendingu um hversu mikil verðmæti liggja í aflaheimildum í landinu.

skip
Auglýsing

Heild­ar­virði þorsk­kvót­ans í land­inu er um 416 millj­arðar króna, sam­kvæmt því við­miði sem miðað er við í verð­mati á afla­heim­ildum Ögur­vík­ur, vegna fyr­ir­hug­aðra kaupa HB Granda á félag­inu.

Í þeim útreikn­ingum er miðað við að kíló­verðið á þorskígildi sé um 2000, en algengt upp­lausn­ar­virði á afla­heim­ildum er tölu­vert hærra, eða nærri 3000. Sé mið tekið af því er virði afla­heim­ildia í þorski 624,7 millj­arðar króna.

Ögur­vík býr yfir um 1,3 pró­sent af heild­ar­afla­heim­ildum mak­ríls og er virði þeirra, miðað við 2000 á kíló, um 730 millj­ónir króna, en sé miðað við 3000 á kíló þorskígildis á nemur virðið tæp­lega 1,1 millj­arði króna.

Auglýsing

Verðmat á aflaheimildum Ögurvíkur.Afla­heim­ildir í mak­ríl hafa þó ekki verið var­an­lega kvóta­sett­ar, heldur úthlutað árlega á grund­velli veiði­reynslu, en verð­mætin eru engu að síður mik­il. Sé miðað við fyrr­nefnt verð­mat á afla­heim­ildum Ögur­víkur er heild­ar­virði mak­ríl­kvót­ans í land­inu um 57 millj­arð­ar, miðað við 2000 á kíló þorskígild­is, en 84,4 millj­arðar miðað við 3000 á kíló.

Eins og greint var frá á vef Kjarn­ans í gær, þá er virði afla­heim­ilda Ögur­vík­ur, sem gerir út togar­ann Vigra RE, áætlað 14,5 millj­arðar króna, í verð­mati á félag­inu í tengslum kaup HB Granda á því.

Selj­andi er Brim hf., nú Útgerð­ar­fé­lag Reykja­vík­ur, sem er í meiri­hluta­eigu Guð­mundar Krist­jáns­son­ar, for­stjóra HB Granda. Brim er jafn­framt stærsti eig­andi HB Granda með rúm­lega 37 pró­sent hlut.

Við­skipt­in, upp á 12,3 millj­arða króna, hafa verið sam­þykkt í stjórn félags­ins en hlut­hafa­fundur þarf að sam­þykkja, og hefur verið boðað til hans 16. októ­ber næst­kom­andi. Þá eru við­skiptin einnig háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Guðmundur Kristjánsson.Fyr­ir­hugað er að kaupa Ögur­vík með lánsfé og eigin fé, sam­kvæmt kynn­ingu á við­skipt­un­um, sem birt var á vef kaup­hall­ar­innar í gær.

Ljóst er að kaupin eru tölu­vert stór biti fyrir HB Granda, en Guð­mundur vill stækka félagið og efla, og telur að með kaup­unum geti náðst fram stærð­ar­hag­kvæmni og skil­virk­ari starf­semi með Reykja­vík sem helstu heima­höfn.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hafa stórir hlut­haf­ar, líf­eyr­is­sjóðir þar hel­st, ekki gert upp hug sinn enn, og mun það ekki skýr­ast fyrr en á hlut­hafa­fund­in­um, hvort af þessum við­skiptum verð­ur.

Hand­hafar um 90 pró­sent af því hlutafé sem eftir stóð, þegar Brim hf. keypti rúm­lega þriðj­ung í HB Granda, skrif­uðu undir sam­komu­lag um að selja ekki hlut­inn þegar yfir­töku­skyldan virkj­að­ist. Til­boðið gerði ráð fyrir verð­miða á HB Granda upp á 65 millj­arða króna, en mark­aðsvirði félags­ins hefur lækkað nokkuð að und­an­förnu og er nú um 57 millj­arð­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent