Frumvarp til laga um þungunarrof lagt fram á haustþingi

Lagt er til í frumvarpinu að konu verði veitt fullt ákvörðunarvald um það hvort hún elur barn fram að lokum 18. viku þungunar, óháð því hvaða ástæður liggja að baki þeim vilja konunnar.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Auglýsing

Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hyggst leggja fram á haust­þingi frum­varp til laga um ný heild­ar­lög um þung­un­ar­rof. Drög að frum­varpi eru til umsagnar á sam­ráðs­gátt stjórn­valda. 

Í frum­varp­inu segir að mark­miðið sé að tryggja að sjálfs­for­ræði kvenna verði virt með öruggum aðgangi að heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir þær konur sem óska eftir þung­un­ar­rofi. Lagt er til að konu verði veitt fullt ákvörð­un­ar­vald um það hvort hún elur barn fram að lokum 18. viku þung­un­ar, óháð því hvaða ástæður liggja að baki þeim vilja kon­unn­ar. 

Þá er lagt til að sér­stak­lega verði kveðið á um rétt kvenna á full­komn­ustu heil­brigð­is­þjón­ustu sem á hverjum tíma eru tök á að veita í tengslum við þung­un­ar­rof og að tryggja skuli aðgang að þung­un­ar­rofi í öllum heil­brigð­is­um­dæmum lands­ins, sbr. lög um heil­brigð­is­þjón­ust­u. 

Auglýsing

Einnig er lagt til ákvæði um fram­kvæmd þung­un­ar­rofs þar sem fram kemur að þung­un­ar­rof með lækn­is­að­gerð skuli fram­kvæmt á sjúkra­húsi undir hand­leiðslu læknis sem sé sér­fræð­ingur á sviði kven­lækn­inga en einnig skuli heim­ilt að fram­kvæma þung­un­ar­rof með lyfja­gjöf á starfs­stöðvum lækna sem sæta eft­ir­liti land­lækn­is. 

Land­lækni skuli til­kynnt um þung­un­ar­rof eftir 18. viku

Enn fremur er lagt til að ákvæði gild­andi laga um að fóst­ur­eyð­ing skuli ætíð fram­kvæmd eins fljótt og auðið er og helst fyrir lok 12. viku þung­unar standi áfram í nýjum lögum til að und­ir­strika mik­il­vægi þess að þung­un­ar­rof skuli fram­kvæmt eins snemma og mögu­legt er. Eftir lok 18. viku þung­unar er lagt til að ein­ungis verði heim­ilt að fram­kvæma þung­un­ar­rof ef lífi þung­aðrar konu er stefnt í hættu við áfram­hald­andi þungun eða ef fóstur telst ekki líf­væn­legt til fram­búð­ar. 

Lagt er til að krafa verði gerð um stað­fest­ingu tveggja lækna fyrir því að fóstur telj­ist ekki líf­væn­legt til fram­búðar og að land­lækni skuli til­kynnt um þau þung­un­ar­rof sem fram­kvæmd eru eftir lok 18. viku þung­un­ar, ástæðu þess og stað­fest­ingu þeirra lækna sem að ákvörð­un­inni komu. 

Synjun verði kær­an­leg

Þá er lagt til að gerð verði krafa um fræðslu um áhættu sam­fara aðgerð­inni sem og að konu skuli boðið upp á stuðn­ings­við­tal vegna þung­un­ar­rofs bæði fyrir og eftir að það er fram­kvæmt. 

Loks er lagt til að til­kynna beri synj­anir um þung­un­ar­rof til Emb­ættis land­læknis og synjun verði kær­an­leg til úrskurða­nefndar um þung­un­ar­rof sem starfi innan Emb­ættis land­læknis og skuli nefndin skila úrskurði innan viku frá því kæra berst nefnd­inni. Í nefnd­inni skuli eiga sæti þrír ein­stak­ling­ar, land­læknir sem verði for­maður nefnd­ar­innar og lög­fræð­ingur og sér­fræð­ingur í fæð­ing­ar- og kven­sjúk­dóma­lækn­ingum sem skipuð verði án til­nefn­ing­ar. Þá er lagt til að Emb­ætti land­læknis haldi skrá á raf­rænu formi yfir öll þung­un­ar­rof sem fram­kvæmd eru. Lagt er til að við­ur­laga­á­kvæði lag­anna verði þess efnis að um brot gegn ákvæðum lag­anna fari sam­kvæmt ákvæðum almennra hegn­ing­ar­laga og laga um heil­brigð­is­starfs­menn, eftir því sem við eigi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent