Trump í opinberum deilum við Kína, Venesúela og Kanada

Bandaríkjaforseti hefur farið mikinn á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York.

h_52822808.jpg
Auglýsing

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti gagn­rýndi Kín­verja, stjórn­völd í Venes­ú­ela og for­sæt­is­ráð­herra Kana­da, harð­lega á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. 

Hann sagði Kín­verja vera að skipta sér af kosn­ing­unum í Banda­ríkj­un­um, og þeir væru að reyna að koma í veg fyrir að hann yrði kos­inn aft­ur. „Það mun ekki takast. Við erum að vinna,“ sagði Trump, en Kín­verjar svör­uðu því til að þetta væri þvætt­ingur í Trump, og engar sann­anir væru til fyrir þessum alhæf­ingum for­set­ans. 

Í gær beindustu spjótin síðan að stjórn­völdum í Venes­e­ú­ela en Trump virt­ist í ræðu sinni ekki úti­loka að Banda­ríkin myndu beita her­valdi í Venes­ú­ela. Trump sagði óstjórn ríkja í land­inu og Banda­ríkin vildu hjálpa til við að koma á röð og reglu. Nicolas Maduro, hinn umdeildi for­seti Venes­ú­ela, sagð­ist vilja eiga fund með Trump til að ræða um stöð­una í Venes­ú­ela og reyna að liðka fyrir betri sam­skiptum milli ríkj­anna. Það hefur enn ekki tekist, en ástand efna­hags­mála er í molum í þessu ann­ars auð­linda­ríka ríki í Suð­ur­-Am­er­íku. Verð­bólgu mælist í þús­undum pró­senta og skelfi­legt ástand er víða í land­inu vegna lyfja­skorts. 

Auglýsing



Trump beindi einnig spjót­unum að Kanada og neit­aði meðal ann­ars að funda með Justin Tru­deau, for­sæt­is­ráð­herra Kanada. Þessar grann­þjóðir hafa átt í stirðum póli­tískum sam­skiptum upp á síðkastið en Trump vill beita tollum í meira mæli í við­skiptum við bæði Kanada og Mexíkó, og segir að með því tak­ist betur að vernda banda­ríska hags­mun­i. 

Þrátt fyrir harða gagn­rýni gagn­vart þessum fyrr­nefndu þjóð­um, þá átti hann fundi með Ther­esu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Benja­min Net­anya­hu, for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els, og Abe for­sæt­is­ráð­herra Jap­ans. Eftir fund­ina fagn­aði hann góðum sam­skiptum við þessa mik­il­vægu vini Banda­ríkj­anna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent