Ólafur Ólafsson vill að Vilhjálmur víki

Ólafur Ólafsson krefst þess að Vilhjálmur Vilhjálmsson dómari víki sæti í máli gegn þar sem tekist er á um kröfu Ólafs um endurupptöku á þætti hans í Al Thani-málinu.

Ólafur Ólafsson.
Ólafur Ólafsson.
Auglýsing

Ólafur Ólafs­son krefst þess að Vil­hjálmur Vil­hjálms­son dóm­ari víki sæti í máli gegn sér í Lands­rétti en aðal­með­ferð hófst í morg­un.

Vil­hjálmur er dóm­ari í máli sem áfrýjað var til Lands­réttar þar sem tek­ist er á um kröfu Ólafs um end­ur­upp­töku á þætti hans í Al Than­i-­mál­inu.

Í svari Þór­ólfs Jóns­son­ar, lög­fræð­ings Ólafs, við fyr­ir­spurn Kjarn­ans segir að sú krafa sé byggð á ákvæði í lögum um með­ferð einka­mála sem kveður á um að dóm­ari sé van­hæfur til að fara með mál ef fyrir hendi eru „önnur atvik eða aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlut­drægni hans með réttu í efa.“

Auglýsing

Í því sam­hengi var vísað til þrenns. Í fyrsta lagi muni Vil­hjálmur vera náinn vinur Mark­úsar Sig­ur­björns­son, sem var einn dóm­enda í Al Thani mál­inu og sat í for­sæti í dóm­in­um. 

Í öðru lagi hafi sonur Vil­hjálms, Ingi Freyr Vil­hjálms­son blaða­mað­ur, ritað tugi blaða­greina um Ólaf þar sem jafnan sé fjallað um hann á afar nei­kvæðan hátt. 

Í þriðja lagi hafi annar sonur Vil­hjálms, Finnur Vil­hjálms­son, verið sak­sókn­ari hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara en síðar ráð­inn starfs­maður rann­sókn­ar­nefndar Alþingis sem rann­sak­aði sölu á eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands hf. Finnur var annar höf­undar skýrslu sem nefndin sendi frá sér þar sem kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu að Ólafur hefði beitt stjórn­völd blekk­ing­um. Erindi frá Ólafi vegna þeirrar máls­með­ferðar allrar er nú til með­ferðar hjá Mann­rétt­inda­dóm­stól Evr­ópu.

„Allt þetta telur Ólafur til þess fallið að draga megi óhlut­drægni Vil­hjálms með réttu í efa og því beri honum að víkja sæti við með­ferð máls­ins. Ólafur telur það sann­gjarna og eðli­lega kröfu að hann fái áheyrn hjá dóm­stól þar sem eng­inn vafi leikur á um hæfi dóm­ar­anna,“ segir í svari Þór­ólfs. 

Hér­aðs­dóm­ur Reykja­vík­­ur hafn­aði kröfu Ólafs Ólafs­­son­ar í des­em­ber síð­ast­liðnum um að fella úr gildi úr­sk­­urð end­­ur­upp­­­töku­­nefnd­ar sem kom­ist hafði að þeirri nið­ur­­­stöðu að ekki væri efni til þess að end­­ur­upp­­­taka Al Than­i-­málið svo­­kall­aða þar sem Ólaf­ur var sak­­felld­ur fyr­ir mark­aðs­mis­­­not­k­un.

Ólaf­ur höfð­aði mál gegn emb­ætti rík­­is­sak­­sókn­­ara og ís­­lenska rík­­inu í júní 2016. Hann krafð­ist þess að felld­ur yrði úr gildi úr­sk­­urður end­­ur­upp­­­töku­­nefnd­ar frá 26. janú­ar 2016 þar sem hafnað var beiðni hans um end­­ur­upp­­­töku Al Than­i-­máls­ins, sem dæmt var í Hæsta­rétti Íslands 12. fe­brú­ar 2015. Þá krafð­ist Ólaf­ur máls­­kostn­að­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent