Unnið með flugmálastjórnum Danmerkur og Lettlands að lausn mála

Primera Air er á leið í gjaldþrot, og mun hætta starfsemi frá og með morgundeginum.

Primera_Air_737-7Q8_TF-JXG.jpg
Auglýsing

Stjórn Pri­mera Air vinnur nú að lausn mála, vegna falls félags­ins, með flug­mála­stjórnum í Dan­mörku og Lett­landi, helstu starfss­svæðum fyr­ir­tæk­is­ins, að því er fram kemur í yfir­lýs­ingu frá stjórn. 

Eins og greint var frá á vef Kjarn­ans í dag, þá segir stjórn Pri­mera það vera mikil von­brigði að ekki hafi tek­ist að tryggja fjár­hag félags­ins. Því var ekk­ert annað að gera en að óska eftir gjald­þrota­skipt­u­m. 

Andri Már Ing­ólfs­son er for­stjóri og aðal­eig­andi félags­ins, en helsta starfs­svæði þess er Norð­ur­lönd og Eystra­salts­lönd. Velta félags­ins var um 23 millj­arðar í fyrra.

Auglýsing

Yfir­lýs­ing frá stjórn félags­ins, fer hér í heild að neð­an:

„Frá og með morg­un­deg­inum 2.októ­ber 2018, hættir Pri­mera Air starf­semi og fer fram á greiðslu­stöðv­un. Þetta eru mikil von­brigði fyrir starfs­fólk og við­skipta­vini félags­ins eftir árang­urs­ríkan rekstur í 14 ár. Ákvörð­unin er tekin í ljósi þung­bærra áfalla á síð­asta ári þar sem félagið missti m.a. flug­vél úr flota sínum vegna tær­ing­ar, en það hafði í för með sér við­bót­ar­kostnað upp á 1,5 millj­arða króna og jafn­framt mik­illa seink­ana á afhend­ingu flug­véla frá Air­bus á þessu ári. Þær tafir hafa kostað Pri­mera Air um 2 millj­arða á árinu 2018. Slík áföll er erfitt að stand­ast í því rekstr­ar­um­hverfi sem ríkir á þessum mark­aði.

Veru­lega hluta­fjár­aukn­ingu hefði þurft til að mæta því tapi sem þegar hefur orðið sem og að takast á við þá upp­bygg­ingu sem unnið var að, en á næsta ári átti félagið t.d. að taka á móti 10 nýju flug­vélum frá Boein­g. 

Stjórn Pri­mera Air tók þá ákvörðun að hætta rekstri á þessum tíma­punkti með áður­nefnt í huga, en jafn­framt var horft til síhækk­andi olíu­verðs, lækk­andi far­miða­verðs á öllum mörk­uð­um, sem og þess að lág­marka óþæg­indi við­skipta­vina félags­ins. Stjórn félags­ins telur einnig að það væri ábyrgð­ar­hluti að fara í svo stóra fjár­fest­ingu sem kaup á 10 nýjum Boeing flug­vélum væri, án þess að full­tryggja slíkt til enda, og til að koma í veg fyrir tjón birgja og leigu­sala.  Að lenda í svo stórum áföllum og ekki geta tryggt áfram­hald­andi rekst­ur, eru óend­an­leg von­brigði öllum sem að félag­inu standa. Pri­mera Air þakkar starfs­fólki sínu ótrú­leg störf í gegnum árin, og við­skipta­vinum sínum traustið og við­skiptin við félagið í gegnum árin.

Unnið verður með flug­mála­stjórnum Dan­merkur og Lett­lands í að leysa úr málum þeirra  far­þega sem eiga bókuð flug. Verða allar upp­lýs­ingar um það birtar á heima­síðu félags­ins. Öll flug fyrir íslenskar ferða­skrif­stofur hafa verið flutt til ann­arra flug­fé­laga, og munu ferða­skrif­stofur upp­lýsa far­þega sína um slíkt, en engin röskun verður á flugi ferða­skrif­stof­a  frá Íslandi. Heims­ferðir hafa flutt alla samn­inga sína til Tra­velservice, og munu aðstoða far­þega Pri­mera Air til tryggja að allir kom­ist á áfanga­stað,“ segir í yfir­lýs­ingu frá stjórn Pri­mera Air.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent