Telur blekkingum hafa verið beitt gegn þjóðinni

Björgólfur Thor kallar eftir skýringum á hvert gjaldeyrisforði þjóðarinnar hafi í raun farið í hruninu.

Björgólfur Thor Björgólfsson
Björgólfur Thor Björgólfsson
Auglýsing

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son athafna­maður kallar eftir í pistli á heima­síðu sinni í dag að nú þurfi á 10 ára hrunaf­mæl­inu að fá end­an­legar skýr­ingar á því hvert gjald­eyr­is­forði þjóð­ar­innar hafi farið sem Kaup­þing fékk að láni frá Seðla­bank­an­um.

Í pistl­inum lýsir Björgólfur því hvernig rík­is­stjórn Íslands hafi átt mögu­leika á að bjarga einum af stóru bönk­unum þremur haustið 2008. Hann gagn­rýnir að Lands­bank­inn hafi ekki fengið lán frá Seðla­bank­anum til að „bjarga“ bank­anum hrun­helg­ina 2008 en þess má geta að Björgólfur var einn aðal­eig­andi Lands­bank­ans á þeim tíma. 

Sam­kvæmt Björgólfi þurfti Lands­bank­inn 200 millj­óna punda fyr­ir­greiðslu frá Seðla­bank­anum til að koma inn­láns­reikn­ingum Lands­bank­ans undir breska lög­sögu en í stað þess veitti Seðla­bank­inn Kaup­þingi 500 millj­óna evra þraut­vara­lán gegn veði í danska bank­anum FIF, dag­inn sem neyð­ar­lögin voru sett.

„Allur gjald­eyr­is­forð­inn rann þar einu bretti í vafa­samar björg­un­ar­að­gerðir Kaup­þings­manna, þar sem helsta mark­miðið var að tryggja stjórn­endum bank­ans, mönnum sem höfðu stýrt félagi í örfá ár, millj­arða í eigin vasa,“ segir Björgólf­ur.

Auglýsing

Fyrr í vik­unni sagði Geir H. Haar­de, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í við­tali í Kast­ljósi að hann teldi að hann hefði verið blekktur í aðdrag­anda láns Seðla­bank­ans til Kaup­þings árið 2008. Í við­tal­inu seg­ir hann að veðið í FIH-­bank­an­um hafi þótt vera mjög traust veð. Það hafi átt að duga fyr­ir þessu þrauta­vara­láni og öðrum skuld­­um. Það hafi hins veg­ar verið hans skiln­ing­ur að fjár­­­magnið sem átti að fara til Kaup­þings ætti að fara í að greiða úr þeim erf­ið­leik­um sem bank­inn átti við að stríða gagn­vart breska fjár­­­mála­eft­ir­lit­inu. Þá hefði verið hægt að bjarga bank­an­um og að það hefði gjör­breytt stöð­unni ef Kaup­þing hefði lifað krepp­una af, þess vegna hafi lánið verið veitt. „En því miður fór þetta á ann­an veg og þess­ir pen­ing­ar fóru, eft­ir því sem ég best veit, eitt­hvað annað en til stóð,“ seg­ir Geir í við­tal­inu.

Björgólfur fer einnig mik­inn í pistl­inum um hversu hent­ugt það hafi verið hversu lengi Ices­a­ve-­deilan var í brennid­epli í sam­fé­lag­inu, að málið hafi verið smjör­klípa sem þjón­aði hags­munum ákveð­inna aðila. „Og á meðan hrópað var hátt um að Ices­ave héldi þjóð­inni í helj­ar­g­reipum og hneppti íslensk börn í breska ánauð um ókomna tíð var horft fram­hjá því að menn fengu að stinga gjald­eyr­is­forða lands­ins að stórum hluta í eigin vasa og stjórn­völd fóru sínu fram með vafasömum björg­unum á spari­sjóðum í æski­legum kjör­dæm­um, svo eitt dæmi sé tek­ið.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent