Lífeyrissjóðurinn Gildi vill að kaup HB Granda á Ögurvík verði könnuð

Hluthafafundur hefur verið boðaður hjá HB Granda 16. október til að ræða kaup félagsins á Ögurvík af Brimi, félagsins sem forstjóri HB Granda, Guðmundur Kristjánsson, á að stærstum hluta.

HB Grandi
Auglýsing

Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi vill að fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Kviku, fjár­fest­inga­banka, verði feng­inn til að meta fyr­ir­huguð kaup HB Granda á öllu hlutafé Ögur­víkur og skil­mála þeirra. Gildi hefur gert þá til­lögu um að bókun þessa efnis verði tekin til með­ferðar á hlut­hafa­fundi HB Granda sem fer fram 16. októ­ber. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Fyrir fund­inum liggur þegar til­laga um að stað­festa ákvörðun stjórn­ar­innar um kaup félags­ins á öllu hlutafé Ögur­víkur ehf. af Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­vík­ur, sem áður bar nafið Brim. Í grein­ar­gerð Gildis segir að þar með liggi fyrir hlut­höfum að leggja mat á og taka afstöðu til þess hvort við­skiptin séu hag­felld fyrir HB Granda. Til­laga Gildi er  meðal ann­ars ann­ars lögð fram í ljósi þess að aðal­eig­andi selj­anda Ögur­vík­urs, Guð­mundur Krist­jáns­son, sé einnig á sama tíma for­stjóri HB Granda og stærsti hlut­hafi fyr­ir­tæk­is­ins.

Mark­mið til­lög­unnar sé því að tryggja að ákvörð­un­ar­taka sé hafin yfir allan vafa. Það liggur fyrir sér­fræði­skýrsla sem bendir á að ein­ungis sé byggt á einni til­tek­inni mats­gerð, án þess að horft sé til ann­arra þátta sem kunni að skipta máli þegar við­skiptin séu metin á heild­stæðum grunni.

Auglýsing

Við­skiptin telj­ast veru­lega umfangs­mik­ill á íslenskum mæli­kvarða

HB Grandi sam­þykkti kaup félags­ins á Ögur­víks  fyrir 12,3 millj­arða króna í sept­em­ber. Afla­heim­ildir Ögur­víkur eru metnar á 14,5 millj­arða króna. Við­skiptin eru hins vegar háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og einni háð sam­þykki hlut­hafa­fund­ar. HB Grandi er eina útgerð­­ar­­fyr­ir­tækið á Íslandi sem skráð er á mark­að, en mark­aðsvirði þess nemur nú 57,4 millj­­örðum króna.

Brim hf., nú Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­vík­­­ur, er stærsti eig­andi HB Granda með ríf­­lega þriðj­ungs­hlut, en það félag er jafn­­framt selj­andi Ögur­vík­­­ur. Guð­­mundur Krist­jáns­­son, for­­stjóri HB Granda, er stærsti eig­andi Útgerð­­ar­­fé­lags Reykja­vík­­­ur. Eigið fé Brims nam í árs­­lok 2016 um 23 millj­­örðum króna, en heild­­ar­skuldir voru á sama tíma 31 millj­­arður króna. Frá þeim tíma hefur mikið vatn runnið til sjávar enda keypti félagið hlut­inn í HB Granda fyrir um 22 millj­­arða króna. 

Kaupin verða fjár­­­mögnuð með eigin fé og láns­fjár­­­magni. Eigið fé HB Granda nam um 250,5 millj­­ónum evra um mitt þetta ár, eða sem nemur um 32 millj­­örðum króna. Stærsti hlut­hafi HB Granda er Brim hf. með tæp­­lega 38 pró­­sent hlut. Aðrir stærstu hlut­hafar eru einkum líf­eyr­is­­sjóð­­ir. Líf­eyr­is­­sjóður versl­un­­ar­­manna á 13,66 pró­­sent, LSR 9,94 pró­­sent, Gildi líf­eyr­is­­sjóður 8,62 pró­­sent, Birta líf­eyr­is­­sjóður 3,95 pró­­sent og aðrir hlut­hafar eiga minna, en sam­an­lagt 28,8 pró­­sent. 







Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent