Til stendur að sameina Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið

Vinna er nú hafin við að sameina Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitið.

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands.
Auglýsing

Ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins hefur ákveðið að hefja end­ur­skoðun lagaum­gjarðar um pen­inga­stefnu, þjóð­hags­varúð og fjár­mála­eft­ir­lit. Fyr­ir­liggj­andi eru skýrslur sér­fræð­inga sem bregða birtu á ýmis við­fangs­efni og tæki­færi til úrbóta við fram­kvæmd pen­inga­stefnu og umgjörð þjóð­hags­var­úðar og fjár­mála­eft­ir­lits, nú síð­ast vinna starfs­hópa um end­ur­skoðun á ramma pen­inga­stefn­unnar og end­ur­skoðun laga um fjár­mála­eft­ir­lit frá því í júní síð­ast­liðn­um.

Þetta kemur fram í frétt for­sæt­is­ráðu­neytis og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. 

Yfir­stjórn þessa verk­efnis verður í höndum ráð­herra­nefndar um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins sem í sitja for­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Á vegum ráð­herra­nefnd­ar­innar starfar verk­efn­is­stjórn um pen­inga­stefnu, þjóð­hags­varúð og fjár­mála­eft­ir­lit, skipuð af for­sæt­is­ráð­herra. Hún er skipuð full­trúum for­sæt­is­ráðu­neytis og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis auk tengiliða frá Seðla­bank­anum og Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Verk­efn­is­stjórnin skal skila drögum að laga­frum­vörpum til ráð­herra­nefndar eigi síðar en 28. febr­úar á næsta ári.

Auglýsing

Sam­kvæmt ráðu­neyt­unum kallar end­ur­skoð­unin á eft­ir­far­andi:

  • Breyt­ingar á lögum sem lúta meðal ann­ars að pen­inga­stefn­unni, núver­andi verk­efnum Seðla­bank­ans og yfir­stjórn. 

  • Breyt­ingar á lögum sem lúta að fyr­ir­komu­lagi þjóð­hags­var­úð­ar. 

  • Breyt­ingar á lögum um fjár­mála­eft­ir­lit. 

  • Breyt­ingar sem lúta að var­an­legu fyr­ir­komu­lagi fjár­streym­is­tæk­is. 

  • Breyt­ingar á yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar og Seðla­bank­ans um verð­bólgu­mark­mið. 

  • Breyt­ingar á verk­lagi í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans. 

Í frétt­inni segir að meg­in­leið­ar­ljós vinn­unnar verði að efla traust, gagn­sæi og skil­virkni við yfir­stjórn efna­hags­mála. Miðað skuli við að við­halda verð­bólgu­mark­miði sem meg­in­mark­miði pen­inga­stefn­unnar og sjálf­stæði Seðla­bank­ans og pen­inga­stefnu­nefndar hans til að beita stjórn­tækjum til að ná því en gera við­eig­andi breyt­ingar sem efla traust og auka gagn­sæi. Enn­fremur skuli miðað við að sam­eina Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­litið með þeim hætti sem eflir traust og tryggir skil­virkni við fram­kvæmd þjóð­hags­var­úðar og fjár­mála­eft­ir­lits.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent