Katrín: Eini leiðarvísirinn að vera sjálfum okkur trú

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hélt ítarlega ræðu í dag á fundi flokksráðs Vinstri grænna. Fylgi við ríkisstjórn hennar hefur farið vaxandi að undanförnu, samkvæmt könnun MMR sem birtist í dag.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra, sagði í ræðu sinni á flokks­ráðs­fundi Vinstri grænna í dag, að sá leið­ar­vísir sem væri bestur fyrir Vinstri græn, í póli­tísku lit­rófi, væri að fylgja eigin sann­fær­ingu og vera sjálfum sér trú­r. 

Hún sagði rík­is­stjórn hennar hafa lagt áherslu á mörg af helstu stefnu­málum Vinstri grænna. Það væri ekki óeðli­legt að kjós­endur skiptu um skoðun og þrosk­uðu sínar hug­myndir um lífið og til­ver­una, og að stjórn­málin þró­uð­ust í takt við það. 

„Vissu­lega er það svo að þegar við breyt­umst þá breyt­ist líka kjós­enda­hópur okk­ar. Bæði vegna þess að við höfðum að ein­hverju leyti ekki til sama fólks og áður en líka – og það er mik­il­vægt að muna – að kjós­endur eru fólk eins og við sem breyt­ist, þroskast, skiptir um skoð­un. Og þá er eini leið­ar­vísir okkar að vera sjálfum okkur trú, gildum okkar og hug­mynd­um. Við erum í lang­hlaupi, góðir félag­ar, og við höfum reynst drý­gri í því lang­hlaupi en margir hafa spáð gegnum tíð­ina. Nýtum tím­ann í kvöld og á morgun til að nesta okkur fyrir það, það gerum við með því að horfa inn á við – og fram á við,“ sagði Katrín meðal ann­ars, í lok ræðu sinn­ar.

Auglýsing

Í ræð­unni kom hún einnig inn á það, að auk­inn jöfn­uð­ur, í víðum skiln­ingi, væri eitt af höf­uð­mark­miðum rík­is­stjórnar henn­ar. Sú áhersla hefði birst í skatta­breyt­ing­um, mennta­mál­um, umhverf­is­mál­um, heil­brigð­is­málum og fleiri áherslu­málum í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu.

Hún nefndi einnig, að sér­stak­lega þyrfti að huga að málum öryrkja og einnig ungs fólks. „Enn eitt jöfn­un­ar­mál er það mik­il­væga verk­efni að bæta fram­færslu öryrkja en í það eru lagðir fjórir millj­arðar í fjár­laga­frum­varp­inu sem nú liggur fyrir Alþingi. Starfað hefur sam­ráðs­hópur sem ætlað er að gera til­lögur um það hvernig þessum fjár­munum verður sem best varið ásamt því að auka mögu­leika öryrkja til virkrar sam­fé­lags­þátt­töku og þátt­töku á vinnu­mark­aði. Þarna verður að horfa til tveggja mik­il­vægra þátta að mínu viti; að bæta fram­færslu þeirra sem ein­göngu hafa úr fram­færslu almanna­trygg­inga að spila og standa höllustum fæti og hins vegar að draga úr skerð­ingum á þær við­bót­ar­tekjur sem fólk aflar sér og hafa reynst letj­andi til allrar þátt­töku á vinnu­mark­aði. Þá er unnið að því í að fara yfir hvernig breyt­ingar á almanna­trygg­ingum sem sam­þykktar voru árið 2016 hvað varðar eldri borgara hafa reynst þeim en mark­miðið er að greina þann hóp eldri borg­ara sem býr við bág­ust kjör og styðja betur við hann. Allt eru þetta mik­il­vægar jöfn­un­ar­að­gerðir sem snú­ast um að útrýma fátækt og tryggja að allir búi við mann­sæm­andi kjör.

Í þess­ari umræðu má hins vegar ekki gleyma unga fólk­inu okkar en margar vís­bend­ingar eru um að þegar við horfum heild­stætt á stöðu ólíkra sam­fé­lags­hópa þá sé unga kyn­slóðin sá hópur sem við þurfum að sinna sér­stak­lega. Öll gögn sem við höfum benda til að unga fólkið hafi dreg­ist aftur úr í tekjum og það er þessi hópur sem á í kröggum með að flytja úr for­eldra­hús­um,“ sagði Katrín í ítar­legri ræðu sinni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent