Fjórðungur íslenskra karla á þrítugsaldri ekki flognir úr hreiðrinu

Ungir íslenskir karlar búa lengur í foreldrahúsum en ungar íslenskar konur. Á árunum 2014 til 2016 bjuggu 26,8 prósent karla á aldrinum 25 til 29 ára í foreldrahúsum en aðeins 14,3 prósent kvenna.

Ungt fólk í íbúðarkaupum
Auglýsing

Fjórð­ungur karla, 24,8 pró­sent, á aldr­inum 25 til 29 ára, bjuggu ennþá í for­eldra­húsum árið 2016. Það er tæp­lega 10 pró­sent hærra hlut­fall en hlut­fall kvenna, 15,6 pró­sent, á sama aldri. Alls búa í heild­ina fimmt­ungur Íslend­inga á þessum aldri ennþá í for­eldra­hús­um.

Á milli ára má sjá svip­aðar tölur en á árunum 2014 til 2016 bjuggu 26,8 pró­sent karla í for­eldra­húsum en aðeins 14,3 pró­sent kvenna á sama ald­urs­tíma­bili. Frá þessu er greint í nýbirtum nið­ur­stöðum lífs­kjara­rann­sóknar Hag­stofu Íslands. 

Niðurstöður lífskjarnarannsóknar Hagstofu Íslands Mynd: Hagstofa Íslands

Auglýsing

Evr­ópskar konur flytja fyrr út en karlar

Hlut­fall fólks á aldr­inum 25 til 29 ára sem býr í for­eldra­húsum er breyti­legt eftir Evr­ópu­löndum en með­al­talið innan Evr­ópu­sam­bands­ins var 39,6 pró­sent árið 2016. En sam­kvæmt heim­ildum Hag­stof­unnar flytja konur fyrr út en karlar í allri Evr­ópu. Árið 2016 reynd­ist hlut­fallið hæst í Króa­tíu 74,5 pró­sent en lægst í Dan­mörku en þar búa aðeins 5 pró­sent ungs fólks, 25 til 29 ára, heima hjá for­eldrum sín­um.

Hlutfall í Evrópu Mynd: Hagstofa Íslands

Á Íslandi bjuggu 20,3 pró­sent ungs fólks ennþá heima hjá for­eldrum sínum árið 2016 en það er átt­unda lægsta hlut­fallið af lönd­unum í lífs­kjara­rann­sókn­inni. Hlut­fallið á Íslandi er meira en tvö­falt hærra en á hinum Norð­ur­lönd­unum sem röð­uðu sér í fjögur lægstu sæt­in. Í Finn­landi búa aðeins 6 pró­sent ungs fólks í for­eldra­húsum og 9 pró­sent í Sví­þjóð og Nor­egi.

Karlar í hærra hlut­falli 

Þegar litið er á ald­urs­hóp­inn 20-29 ára reynd­ust 34,4 pró­sent íslenskra kvenna en 44,1 pró­sent karla búa í for­eldra­húsum árið 2016. Þegar þró­unin er skoðuð frá upp­hafi lífs­kjara­rann­sókn­ar­inn­ar, árið 2004, sést að hlut­fall ungra kvenna í for­eldra­húsum hefur auk­ist síðan það var lægst árið 2005 en þá var það 23 pró­sent. Hlut­fall ungra karla í for­eldra­húsum hefur nokkurn veg­inn staðið í stað á sama tíma­bili.

Hlutfall 20-29 ára Mynd:Hagstofa Íslands

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent