Ákvörðun um lögbann ekki tekin í dag

Ekki verður tekin ákvörðun um lögbann á vefsíðuna tekjur.is í dag en Ingvar Smári Birgisson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, gerði kröfu um að lögbann yrði sett á vefinn.

Ingvar Smári Birgisson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna.
Ingvar Smári Birgisson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna.
Auglýsing

Ekki verður tekin ákvörðun um lög­bann á vef­síð­una tekj­ur.is í dag. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fær málið flýti­með­ferð en þó er ekki hægt að segja nákvæm­lega til um hvenær ákvörð­unin um lög­bannið verður tek­in. Þetta kemur fram í frétt RÚV. 

Ef sýslu­maður metur að skil­yrði fyrir lög­banni séu ekki fyrir hendi verður málið end­ur­sent. Ef skil­yrði til lög­banns eru fyrir hendi tekur sýslu­maður ákvörðun um málið en einnig er mögu­legt að báðir aðilar verði boð­aðir í fyr­ir­töku og ákvörðun tekin í fram­haldi af því. Litið er á málið sem for­gangs­mál og fær það flýti­með­ferð en þó er ekki ljóst hvenær ákvörðun verður tek­in, segir í frétt­inn­i. 

Kjarn­inn fjall­aði um málið í gær en Ingvar Smári Birg­is­son, for­maður Sam­bands ungra sjálf­stæð­is­manna, gerði kröfu um að lög­bann yrði sett á vef­inn Tekj­ur.­is. Auk þess hefur form­leg kvörtun borist Per­sónu­vernd frá almanna­tengl­inum Björg­vini Guð­munds­syni vegna máls­ins.

Auglýsing

Í yfir­lýs­ingu frá Ingvari Smára seg­ir: „Ég tel að birt­ing fjár­hags­upp­lýs­inga allra skatt­greið­enda á vefnum Tekj­ur.is feli í sér ómak­lega aðför að stjórn­ar­skrár­vörðum rétti almenn­ings til frið­helgis einka­lífs. Með starf­rækslu vefs­ins er að mínu mati farið út fyrir heim­ildir þeirra ákvæða sem hafa legið að baki opin­berri umfjöllun um laun og skatt­greiðslur Íslend­inga í gegnum árin. Í ljósi þess tel ég rétt að sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu leggi lög­bann við vinnslu Visku­brunns ehf. á fjár­hags­upp­lýs­ingum Íslend­inga og að félag­inu verði gert að afmá upp­lýs­ing­arnar af vef­síðu sinni, tekj­ur.­is. Í kjöl­farið sé svo hægt að takast á við um lög­mæti lög­banns­ins fyrir dóm­stól­u­m.“

Í til­kynn­ingu frá Jóni R. Arn­ar­syni, stjórn­ar­for­manni Visku­brunns ehf. sem setti upp og rekur vef­inn, sem send var út á föstu­dag sagði að fyr­ir­tækið hafi verið stofnað til að „stuðla að gagn­sæi og sam­ræmi í umfjöllun um skatta­mál. Þannig eru ekki birtar upp­lýs­ingar um þröngan hóp val­inna ein­stak­linga, heldur er not­endum síð­unnar í sjálfs­vald sett hvaða upp­lýs­ingar þeir kynna sér. Upp­lýs­ing­arnar á Tekj­ur.is eru end­an­legar upp­lýs­ingar um fram­taldar tekj­ur. Þar eru ekki birtar bráða­birgða­upp­lýs­ingar eða áætl­anir eins og hingað til hefur tíðkast í tekju­blöð­u­m.“

Byggja á lögum frá 1984 

Upp­lýs­ingar um það hvernig tekjur fólks skiptast, og tæm­andi upp­lýs­ingar um hverjir borga hvað í skatta, er hægt að finna í svo­kall­aðri skatt­skrá. Í vor var skatt­skráin fyrir árið 2017 gerð opin­ber. Í henni er að finna nið­ur­brot á öllum skatt­greiðslum ein­stak­linga – tekju­skatt, útsvar og fjár­magnstekju­skatt – vegna árs­ins 2016. Þessar upp­lýs­ing­ar, sem eru gerðar aðgengi­legar af rík­is­skatt­stjóra, er heim­ilt að birta opin­ber­lega sam­kvæmt annarri máls­grein 98. greinar laga um tekju­skatt sem sett voru 1984. Þar seg­ir: „Heimil er opin­ber birt­ing á þeim upp­lýs­ingum um álagða skatta, sem fram koma í skatt­skrá, svo og útgáfa þeirra upp­lýs­inga í heild eða að hluta.“

Ingvar Smári er þessu ósam­mála og segir í yfir­lýs­ingu sinni að sterk rök megi „færa fyrir því að sala á aðgangi að gagna­grunni sem inni­heldur upp­lýs­ingar um skatt­greiðslur allra lands­manna sé lög­brot. Per­sónu­vernd hefur áður fall­ist á að birt­ing upp­lýs­inga úr skatt­skrá Rík­is­skatt­stjóra, mjög svipuð þeirri sem á sér stað á tekj­ur.is, sé ólög­mæt. Þá verður að hafa í huga að ákvæði það sem Visku­brunnur ehf. ber fyrir sig, 2. mgr. 98. gr. tekju­skatts­laga, var lög­fest fyrir tíma inter­nets­ins. Um er að ræða ákvæði sem felur í sér tak­mörkun á borg­ara­legum rétt­indum og því sé rétt að skýra það þröngt, þannig að gild­is­svið ákvæð­is­ins sé tak­markað sem mest. Enn fremur hefur rétt­ar­vernd almenn­ings gagn­vart notkun á per­sónu­upp­lýs­ingum þeirra verið styrkt til muna með til­komu nýrra laga um Per­sónu­vernd.

Verði ekki fall­ist á lög­bann verður tekið til skoð­unar að leita álits dóm­stóla á því hvort vegi hærra, réttur almenn­ings til frið­helgis einka­lífs eða réttur almenn­ings til þess að starf­rækja gagna­grunn á inter­net­inu sem inni­heldur upp­lýs­ingar um laun og skatt­greiðslur skatt­greið­enda.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent