Von á tillögum um hvernig megi hagræða í bankakerfinu

Forsætisráðherra segir að framundan sé skoðun á fjármálakerfinu og tillögur um úrbætur berast brátt.

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir von á grein­ingu og til­lögum í næsta mán­uði um hvernig lækka megi vexti og kostnað í banka­kerf­inu. Nefnd sem vinnur að hvít­bók um fjár­mála­kerfið og stefnu­mörkun fyrir það til fram­tíð­ar, sem Lárus Blön­dal hrl. leið­ir, mun skila af sér til­lögum til stjórn­valda.

Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld

Meðal þess sem liggur til grund­vallar um skoð­un­ina á þessum efn­um, er skýrsla Gylfa Zoega, hag­fræði­pró­fess­ors, sem hann vann fyrir for­sæt­is­ráðu­neyt­ið. Í henni er farið vítt og breitt yfir stöðu efna­hags­mála, og meðal ann­ars vikið að því að nauð­syn­legt væri að kanna hag­kvæmni í banka­kerf­inu og hvernig ná fram meiri hag­kvæmni fyrir almenn­ing á Ísland­i. 

Auglýsing

Íslenska ríkið er lang­sam­lega umsvifa­mesti aðil­inn á íslenskum fjár­mála­mark­aði. Það á Íslands­banka að fullu, tæp­lega 99 pró­sent hlut í Lands­bank­an­um, Íbúða­lána­sjóð, LÍN og Byggða­stofn­un. Sam­tals er mark­aðs­hlut­deild rík­is­ins í kringum 80 pró­sent. 

Breyt­ingar á banka­kerf­inu til hag­ræð­ingar verða því alltaf með ein­hverjum hætti á hendi rík­is­ins. Um mikil verð­mæti er að ræða, en sam­an­lagt eigið fé Íslands­banka og Lands­bank­ans nemur um 450 millj­örðum króna. 

„Ég held að það sé mjög mik­il­vægt að við greinum þetta því þetta snýst ekki bara um stýri­vexti Seðla­bank­ans eins og stundum er haldið fram heldur líka um vexti við­skipta­bank­anna og þá þurfum við að skoða þennan kostn­að, sem þar liggur á bak við,“ sagði Katrín í sam­tali við RÚV.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent