WOW hættir að fljúga frá þremur borgum í miðvesturríkjum Bandaríkjanna

Flugfélagið hættir að fljúga frá St. Louis í byrjun næsta árs og mun ekki snúa aftur til Cincinnati eða Cleveland næsta sumar.

WOW air flugvél
WOW air flugvél
Auglýsing

Flug­fé­lagið WOW air hefur ákveðið að hætta að fljúga frá þremur borgum í mið­vest­ur­ríkjum Banda­ríkj­anna. WOW hættir að fljúga frá St. Louis í byrjun næsta árs og mun ekki snúa aftur til Cincinnati eða Cleveland næsta sum­ar. Aðeins eru fimm mán­uðir síðan WOW hóf að fljúga frá þessum þremur borg­um. Fyrr í þessum mán­uði hætti flug­fé­lagið að fljúga til tveggja borga í Evr­ópu og San Francisco. Þetta kemur fram í banda­rískum fjöl­miðlum en RÚV greinir fyrst frá hér á land­i. 

Svo virð­ist sem ákvörðun WOW um að hætta við ferðir frá St. Louis hafi komið for­svars­mönnum flug­vall­ar­ins þar í opna skjöldu. „Við erum vonsviknir með þessa ákvörðun því við­brögð við­skipta­vina hafa verið mjög góð,“ segir í yfir­lýs­ingu flug­vall­ar­ins og vitnað er til í frétt USA Today. WOW ber að bjóða far­þegum val um annað flug á áfanga­stað eða end­ur­greiðslu á far­miða, segir í frétt RÚV.

Í frétt USA Today er einnig rifjað upp að for­svars­menn WOW hafi fyrir mán­uði til­kynnt að flug­fé­lagið myndi snúa aftur til Cleveland. Haft er eftir Svan­hvíti Frið­riks­dótt­ur, upp­lýs­inga­full­trúa flug­fé­lags­ins, að WOW ætli sér að fljúga áfram til Detroit.

Auglýsing

USA Today segir að miðað við orð Svan­hvítar sé hugs­an­legt að fleiri breyt­ingar í far­vatn­inu hjá WOW varð­andi Amer­íkuflug­ið. Þegar hún hafi verið spurð um hvort WOW ætli að halda áfram að fljúga til New York og Dallas hafi hún svarað því að engin ákvörðun hefði verið tekin um slíkt.

Í til­kynn­ingu sem WOW air sendi frá sér í byrjun októ­ber kemur fram að félagið muni ekki fljúga til Stokk­hólms, Edin­­borgar og San Francisco yfir vetr­­ar­mán­uð­ina. Það aflýsti því flugum frá 5. nóv­­em­ber næst­kom­andi til byrjun apríl á næsta ári. Ákvörðun var tekin með það að leið­­ar­­ljósi að ná fram auk­inni hag­ræð­ingu í rekstri félags­­ins, sam­kvæmt til­kynn­ing­unn­i. 

Í gær til­kynnti flug­fé­lagið að það myndi hefja að nýju ferðir til Tel Aviv.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent