Ráðherra skipar aðgerðahóp um verkefnið Karlar og jafnrétti

Meginhlutverk aðgerðahópsins er meðal annars að beita sér fyrir aðgerðum stjórnvalda um að auka þátttöku drengja og karla í öllu starfi og stefnumótun á sviði jafnréttismála.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Auglýsing

Ásmundur Einar Daða­son félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra hefur ákveðið að skipa aðgerða­hóp um verk­efnið Karlar og jafn­rétti í sam­ræmi við fram­kvæmda­á­ætlun í jafn­rétt­is­málum fyrir árin 2016 til 2019.

Þetta kemur fram í svari Ásmundar Ein­ars við fyr­ir­spurn frá Andr­ési Inga Jóns­syni um karla og jafn­rétti.

Andrés Ingi spurði hvernig brugð­ist hefði verið við þeim fimmtán til­lögum sem fram komu í skýrsl­unni Karlar og jafn­rétti: Skýrsla og til­lögur um auk­inn hlut karla í jafn­rétt­is­málum, sem vel­ferð­ar­ráð­herra var afhent í apríl árið 2013.

Auglýsing

Í svar­inu kemur fram að meg­in­hlut­verk aðgerða­hóps­ins sé ann­ars vegar að beita sér fyrir aðgerðum stjórn­valda um að auka þátt­töku drengja og karla í öllu starfi og stefnu­mótun á sviði jafn­rétt­is­mála og hins vegar að vinna til­lögur um hvernig stefnu­mótun á sviði jafn­rétt­is­mála geti betur tekið mið af sam­fé­lags­legri stöðu karla. 

Aðgerða­hópnum verði falið að taka mið af þeim til­lögum sem fram komu í fyrr­verndri skýrslu. Und­ir­bún­ingur fyrir skipun aðgerða­hóps­ins er í ferli og hefur hóp­ur­inn störf á næst­unni, segir í svar­in­u. 

Verk­efnið hefur taf­ist

Gert er ráð fyrir að aðgerða­hóp­ur­inn verði skip­aður full­trúum frá heil­brigð­is­sviði Háskól­ans á Akur­eyri, Félagi leik­skóla­kenn­ara, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu og vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu. Sér­fræð­ingur Jafn­rétt­is­stofu mun starfa með aðgerða­hópn­um. Jafn­rétt­is­stofa hefur unnið verk­efn­is­lýs­ingu fyrir aðgerða­hóp­inn.

„Á und­ir­bún­ings­tíma verk­efn­is­ins hafa orðið miklar breyt­ingar í kjöl­far #MeToo-­bylt­ing­ar­inn­ar. Jafn­framt hefur verk­efnið taf­ist. Því var talið nauð­syn­legt að fækka verk­efnum aðgerða­hóps­ins og sníða að umræðu í sam­fé­lag­inu um kyn­ferð­is­lega og kyn­bundna áreitn­i,“ segir í svar­in­u. 

Gera til­lögur um við­brögð stjórn­valda við #metoo

Við­fangs­efnum aðgerða­hóps­ins er skipt í fjóra meg­in­þætti. Í fyrsta lagi að vinna að heild­stæðri aðgerða­á­ætlun stjórn­valda, meðal ann­ars á grund­velli til­lagna nefndar um karla og jafn­rétti frá árinu 2013. Áætl­unin fjalli sér­stak­lega um hvernig stefnu­mótun stjórn­valda á sviði jafn­rétt­is­mála geti betur tekið mið af sam­fé­lags­legri stöðu karla og drengja og fjalli um aðgerðir er snúa að þátt­töku karla og drengja á sviði jafn­rétt­is­mála, fæð­ing­ar­or­lofstöku feðra, bættum mögu­leikum karla á sam­hæf­ingu fjöl­skyldu- og atvinnu­lífs sem og aðgerðum um upp­brot kyn­bund­ins náms- og starfs­vals með til­liti til brott­falls karla úr námi á efri skóla­stig­um. 

Í öðru lagi að gera til­lögur um mæl­ingar á við­horfum drengja og karla til helstu við­fangs­efna jafn­rétt­is­mála með hlið­sjón af erlendum við­horfskönn­un­um. Könn­unin kanni sér­stak­lega við­horf og notkun karla á heil­brigð­is­þjón­ustu og sömu­leiðis hvort ákveðnir hópar karla fari á mis við þjón­ustu­úr­ræði í heil­brigð­is­mál­u­m. 

Í þriðja lagi að gera til­lögur um við­brögð stjórn­valda við #MeToo-­bylt­ing­unni og í fjórða lagi að gera til­lögur um aðgerðir til að efla sál­fræði- og geð­heil­brigð­is­þjón­ustu við þolendur og ger­endur kyn­ferð­is­of­beld­is.

Ráð­herra býst við að aðgerða­hóp­ur­inn ljúki störfum og skili skýrslu með til­lögum haustið 2019 til félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra og ráð­herra­nefndar um jafn­rétt­is­mál þar sem meðal ann­ars skuli gera grein fyrir stöðu þekk­ingar um karla og jafn­rétti og setja fram til­lögur að rann­sóknum og aðgerð­um. Horfa skuli til fyr­ir­mynda og stefnu­mót­unar um karla og jafn­rétti á Norð­ur­lönd­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent