Pétur Óskarsson ráðinn framkvæmdastjóri Íslandsstofu

Alls sóttu 44 um starfið en ráðningarferlið var í höndum Capacent.

Pétur Óskarsson
Auglýsing

Pétur Þ. Ósk­ars­son hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Íslands­stofu, sem er sam­starfs­vett­vangur fyr­ir­tækja, hags­muna­sam­taka, stofn­ana og stjórn­valda um stefnu og aðgerðir til að efla ímynd og orð­spor Ísland.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Íslands­stofu. 

Hlut­verk Íslands­stofu er að veita alhliða þjón­ustu og ráð­gjöf til að greiða fyrir útflutn­ingi vöru og þjón­ustu, laða til lands­ins erlenda ferða­menn og fjár­fest­ingu með sam­ræmdu kynn­ing­ar- og mark­aðs­starfi og vera stjórn­völdum til ráðu­neytis um fjár­fest­ing­ar­mál.

Auglýsing

Björgólfur Jóhanns­son, for­maður stjórnar Íslands­stofu, segir ráðn­ingu Pétus fagn­að­ar­efn­i.„Ís­lands­stofa stendur á tíma­mótum en ný lög um starf­semi hennar tóku gildi í sept­em­ber þar sem Íslands­stofu var breytt í sjálfs­eign­ar­stofn­un. Framundan eru umfangs­mikil og krefj­andi verk­efni, ekki síst lang­tíma­stefnu­mótun um mark­aðs­setn­ingu og útflutn­ing á íslenskum vörum, þjón­ustu og menn­ingu. Stjórn Íslands­stofu stóð frammi fyrir erf­iðu vali þar sem hópur ein­stak­lega hæfra ein­stak­linga gaf kost á sér til að leiða þetta verk­efni. Við fögnum því að hafa fengið Pétur Þ. Ósk­ars­son í for­ystu Íslands­stofu. Yfir­grips­mikil reynsla hans og fyrri störf úr utan­rík­is­þjón­ust­unni og atvinnu­líf­inu, jafnt hér á landi sem erlend­is, munu nýt­ast vel við verk­efnin framund­an. Ég vil nota þetta tæki­færi til að þakka frá­far­andi fram­kvæmda­stjóra, Jóni Ásbergs­syni, fyrir hans fram­úr­skar­andi starf í þágu íslensks atvinnu­lífs um ára­bil,“ segir Björgólf­ur.

Pétur hefur frá árinu 2015 verið fram­kvæmda­stjóri Sam­skipta­sviðs Icelandair Group. Áður bar hann m.a. ábyrgð á sam­skipta­málum Sím­ans, Fram­taks­sjóðs Íslands, Skipta og Íslands­banka. Hann var við­skipta­full­trúi Íslands í Banda­ríkj­unum og Kanada á árunum 2000-2005 þar sem hann var meðal ann­ars annar fram­kvæmda­stjóra Iceland Naturally verk­efn­is­ins, sam­starfs­verk­efni íslenskra stjórn­valda og fyr­ir­tækja um kynn­ingu á Íslandi og íslenskum vörum og þjón­ust­u. 

Á und­an­förnum árum hefur hann setið í fjöl­mörgum stjórnum fyr­ir­tækja og sam­taka, m.a. Sam­taka atvinnu­lífs­ins, Sam­taka ferða­þjón­ust­unnar og Amer­ísk-­ís­lenska við­skipta­ráðs­ins. ­Pétur er með BA-gráðu í heim­speki frá Háskóla Íslands og MBA-gráðu frá Fordham-há­skóla í New York.

Alls bár­ust 44 umsóknir um starf fram­kvæmda­stjóra Íslands­stofu og var ráðn­ing­ar­ferlið í höndum Capacent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent