Dagsektum verði beitt ef félög fara ekki að lögum um kynjahlutföll í stjórnum

Samkvæmt frumvarpi átta þingmanna úr ólíkum flokkum verða félög sektuð sem ekki fara að lögum um kynjahlutföll í stjórnum.

Konur og karlar 1/9
Auglýsing

Sam­kvæmt frum­varpi átta þing­manna á Alþingi úr öllum flokkum þá verður dag­sektum beitt, 100 þús­und krónur á dag, gagn­vart þeim félögum sem ekki upp­fylla laga­skyldu um að kynja­hlut­föll í stjórn­um. Sekt­irnar renna í rík­is­sjóð og munu leggj­ast á þau félög sem ekki upp­fylla skyld­urnar en gert er ráð fyrir lögin muni öðl­ast gildi 1. jan­úar 2020.

Lögin gera nú ráð fyrir að í það minnsta 40 pró­sent stjórn­ar­manna séu kon­ur, en fjöl­mörg dæmi eru um það að félög fari ekki að lög­um.

Fyrsti flutn­ings­maður er Lilja Raf­ney Magn­ús­dótt­ir, þing­maður Vinstri grænna, en flutn­ings­menn eru auk henn­ar Halla Signý Krist­jáns­dótt­ir, Þor­steinn Víglunds­son, Inga Sæland, Hall­dóra Mog­en­sen, Albertína Frið­björg Elí­as­dótt­ir, Þor­steinn Sæmunds­son og Bryn­dís Har­alds­dótt­ir.

Auglýsing

Frum­varpið er til breyt­ingar á lögum um sam­vinnu­fé­lög, lögum um einka­hluta­fé­lög, lögum um hluta­fé­lög og lögum um sam­eign­ar­fé­lög, og nær þannig til allra fyrr­nefndar félaga­forma.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu er meðal ann­ars vísað til góðrar reynslu Nor­egs af kynja­kvótum og eft­ir­fylgni með dag­sekt­ar­úr­ræð­u­m. 

„Í Nor­egi voru sam­þykkt lög um kynja­kvóta í stjórnum stærri hluta­fé­laga árið 2003. Þar var kveðið á um að hlutur hvors kyns í stjórn skuli vera að lág­marki 40%. Eftir inn­leið­ingu norsku lag­anna hækk­aði hlutur kvenna í stjórnum hluta­fé­laga úr 6% árið 2002 í 40% árið 2011. Hlut­fall kvenna í stjórnum stórra fyr­ir­tækja í Nor­egi hækk­aði úr fjórð­ungi stjórn­ar­manna árið 2004 í 36% árið 2006 og náði 42% árið 2009. Sam­kvæmt Sissel Jen­sen, norskum hag­fræð­ingi, er auk­inn hlutur kvenna meðal þeirra sem fá hæst laun bein afleið­ing kynja­kvót­ans. Konur fá frekar tæki­færi til að vera meðal æðstu stjórn­enda þegar stjórnin sjálf er skipuð bæði körlum og kon­um. Þessar nið­ur­stöður koma heim og saman við til­gang lag­anna, þ.e. að fleiri konur fá tæki­færi til áhrifa í við­skipta­líf­inu. Sam­kvæmt norsku lög­unum er heim­ilt að leggja dag­sektir á þau félög sem ekki fara að lögum við til­kynn­ingar til hluta­fé­laga­skrá. Fari félög ekki að lögum þrátt fyrir álagn­ingu dag­sekta getur hluta­fé­laga­skrá hafið ferli sem endar með slitum félags­ins. Geri hluta­fé­laga­skrá kröfu um slit félags vegna van­rækslu laga­skyldu getur slíkt mál farið fyrir dóm­stóla. 

Þrátt fyrir að Ísland hafi fylgt nokkuð fast á eftir for­dæmi Nor­egs með laga­setn­ingu um kynja­kvóta í stjórnum félaga hefur ekki náðst sami árangur á Íslandi. Gef­inn var rúmur aðlög­un­ar­tími fyrir gild­is­töku ákvæða um hlut­fall kynja í stjórnum en hlut­fallið hefur ekki jafn­ast og ákvæðum hefur í reynd ekki verið fylgt. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Hag­stofu Íslands voru konur 26,1% stjórn­ar­manna fyr­ir­tækja sem greiða laun og skráð eru í hluta­fé­laga­skrá í lok árs 2017. Hlut­fall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja með yfir 50 laun­þega náði hámarki 33,2 % árið 2014 en hefur farið lækk­andi síð­an. Hlut­fall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja með færri en 50 laun­þega stendur í stað á milli ára. Íslensk lög um þetta eru byggð á þeim norsku en ekki er þar að finna sam­bæri­leg við­ur­laga­á­kvæði. Flutn­ings­menn telja tíma­bært að skýrt verði kveðið á um það í lögum að leggja skuli dag­sektir á þau félög sem ekki fara að ákvæðum um hlut­föll kynja í stjórnum svo að mark­mið þeirra nái fram að ganga,“ segir í grein­ar­gerð­inn­i. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent