Hóta að loka Reykjanesbrautinni í mótmælaskyni

Hópur fólks hyggst loka Reykjanesbrautinni í vikunni eftir að banaslys varð þar í gær. Þau mótmæla hægagangi stjórnvalda við tvöföldun vegarins en skiptar skoðanir eru innan hópsins um aðgerðir.

gotur-og-umfer_16380743584_o.jpg
Auglýsing

Þrýsti­hóp­ur­inn Stopp, hingað og ekki lengra hyggst grípa til aðgerða í mót­mæla­skyni við hæga­gangi við tvö­földun Reykja­nes­braut­ar­inn­ar. Hóp­ur­inn hef­ur ­lengi bent á hversu hættu­leg brautin er á þessum kafla og hefur und­an­farin ár þrýst á stjórn­völd að klára tvö­földun Reykja­nes­braut­ar. ­Banaslys sem var á Reykja­nes­braut­inni til móts við Valla­hverfi í gær­morgun hefur vakið hörð við­brögð innan hóps­ins. 

Guð­bergur Reyn­is­son, annar þeirra sem fer fyrir hópn­um, segir að hóp­ur­inn hafi lengi bent á hversu hættu­leg brautin sé á þessum kafla og hætt­una á banaslys­um­. „Þessi kafli þar sem þetta slys ger­ist er kom­inn á sam­­göng­u­á­ætlun en við börð­umst fyrir tveimur árum fyrir því að koma Reykja­­nes­braut­inni á sam­­göng­u­á­ætlun og náðum því. Í nýj­­ustu sam­­göng­u­á­ætl­­un­inni er kafl­inn frá flug­­­stöð­inni að Fitjum í Reykja­­nesbæ og svo frá Hvassa­hrauni inn í Hafn­­ar­­fjörð kom­inn aftur til 2033. Við erum búin að vera að benda á það síð­­­ustu daga að þetta gangi ekki. Það er alltof ­mikil hætta á banaslysum á þessum hætt­u­­leg­asta kafla lands­ins. Það sann­­ast núna í dag,“ segir Guð­bergur í við­tali við Rúv í gær

Hóp­­ur­inn skoðar nú að loka Reykja­­nes­braut­inni í mót­­mæla­­skyn­i: „Við erum búin að hóta því. Það virð­ist vera eina leiðin til að ná eyrum ráða­­manna að gera eitt­hvað rót­tækt. Fyrir tveimur árum síðan ákváðum við að fara ekki í svona rót­tækar aðgerðir og okkur tókst að ná fram ýmsum umbót­­um. Við fengum hring­­torg og við náðum að láta loka þar sem Hafna­­veg­­ur­inn kom inn á Reykja­­nes­braut­ina. Við höldum að þetta sé núna eina leiðin til að ná eyrum ráða­­manna,“ segir Guð­bergur

Auglýsing

Skiptar skoð­­anir innan hóps­ins

Ísak Ernir Krist­ins­­son, annar stofn­enda þrýst­i­hóps­ins Stopp, hing­að ekki ­lengra, kveðst ekki sam­­mála Guð­bergi Reyn­is­­syni, hinum stofn­enda hóps­ins, um að veg­­ur­inn verði lok­aður í mót­­mæla­­skyn­i.

„Ég trúi ekki á svona aðgerð­ir,“ segir Ísak Ernir í færslu á Face­book-síðu sinni í gær­­kvöldi. „Frá því að við Guð­bergur Reyn­is­­son stofn­uðum þrýst­i­hóp­inn „Stopp, hingað og ekki lengra” hefur hóp­­ur­inn náð eft­ir­­tekt­­ar­verð­u­m ár­angri í að bæta umferð­­ar­ör­ygg­i á Reykja­­nes­braut! Frá upp­­hafi hafa verið uppi háværar raddir um að fara í lok­­anir á Reykja­­nes­braut­inni til þess eins að vekja athygli á mál­­staðn­­­um. Ég hef alla tíð og er enn algjör­­lega mót­­fall­inn svo­­leiðis aðgerðum enda hefur mál­efni Reykja­­nes­brautar verið í brennid­­epli! Við höfum náð árangri þó fulln­að­­ar­­sigrinum hafi enn ekki verið náð,“ segir Ísak Ern­­ir.

Ísak kveðst ekki sam­­mála ummælum Guð­bergs um að rót­tækar aðgerðir séu eina leiðin til að ná til eyra ráða­­manna. „Stöndum saman og vinnum málin á eðli­­legan máta: í gegnum stjórn­­­sýsl­una og á sviði stjórn­­­mál­anna. Sam­­göng­u­á­ætlun er til­ um­fjöll­unn­ar á Alþingi og er ekki útséð með að henni verði breytt okkur til hags­­bóta! Það skal þó skýrt tekið fram að sam­­göng­u­á­ætlun Sig­­urðar Inga olli mér MIKLUM von­brigð­um! Áætlun með kol­rangri for­­gangs­röð­un!“

Varð­­stjóri varar við lokun

Guð­brandur Sig­­urðs­­son, aðal­­varð­­stjóri ­um­ferð­ar­deild­ar­ lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir að eng­inn hafi leyfi til að loka vegum án leyf­­­is. Guð­bergur bendir á að tvö­­­földun Reykja­­nes­brautar hafi verið sett á 15 ára áætlun á síð­­­ustu sam­­göng­u­á­ætl­­un. „Við vegum þetta og metum þegar þar að kem­­ur. Ef þetta truflar gang sam­­fé­lags­ins og rýrir umferð­­ar­ör­yggi grípum við til okkar ráða,“ segir Guð­brandur Sig­­urðs­­son, en bætir við að auð­vitað sé ævin­­lega fyrst reynt að höfða til skyn­­semi fólks. Frá þessu er greint í Morg­un­­blað­inu í dag.

Guð­brandur segir að það sé lýð­ræð­is­­legur réttur allra að mót­­mæla en það tak­­markast við að mót­­mælin skapi ekki hættu. Guð­brandur segir að það sé þá sem lög­­reglan grípi inn í. Hann seg­ist skilja áhyggjur fólks en betra sé ef fólk fari ekki að hlaupa á sig með svona aðgerð. „Þar að auki er ekki víst að þetta sé vegna vega­­kerf­is­ins. Ýmsir aðrir þættir spila inn í svona mál, eins og athygli öku­­manns,“ bætir hann við.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent