Eftirstandandi aflandskrónueignir nema um 88 milljörðum króna

Unnið er að undirbúningi að losun eftirstandandi aflandskrónueigna en hún krefst lagabreytinga.

peningar
Auglýsing

Þrátt fyrir að fjár­magns­höft hafi að lang­mestu leyti verið losuð þá hefur full og end­an­leg losun þeirra enn ekki farið fram. Eft­ir­stand­andi aflandskrónu­eignir nema um 88 millj­örðum króna eða 3,2 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Þegar fjár­magns­höft voru sett árið 2008 námu aflandskrónu­eignir um 40 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu.

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra. Mynd: Bára Huld Beck.Þetta kemur fram í grein­ar­gerð Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um fram­gang áætl­unar um losun fjár­magns­hafta en sam­kvæmt lögum um gjald­eyr­is­mál ber honum að gera Alþingi grein fyrir fram­gangi áætl­unar um losun tak­mark­ana á fjár­magns­hreyf­ingum milli landa og gjald­eyr­is­við­skiptum á sex mán­aða fresti þar til slíkum tak­mörk­unum verður end­an­lega aflétt. 

Jafn­framt kemur fram að unnið sé að und­ir­bún­ingi að losun eft­ir­stand­andi aflandskrónu­eigna en að losun þeirra krefj­ist laga­breyt­inga. Auk þess sé unnið að laga­breyt­ingum sem lúta að var­an­legu fyr­ir­komu­lagi fjár­streym­is­tækis hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti og Seðla­banka Íslands í tengslum við breyt­ingar sem eru í und­ir­bún­ingi á lögum um Seðla­bank­ann og kynntar voru þann 11. októ­ber síð­ast­lið­inn. Enn fremur sé stefnt að heild­ar­end­ur­skoðun laga um gjald­eyr­is­mál. 

Auglýsing

Bind­ing­ar­hlut­fall fjár­streym­is­tæk­is­ins lækkar

Þann 2. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn voru birtar á vef Stjórn­ar­tíð­inda reglur Seðla­banka Íslands um breyt­ingar á reglum bank­ans um bind­ingu reiðu­fjár vegna nýs inn­streymis erlends gjald­eyr­is. Regl­urnar tóku gildi þá þegar en breyt­ingin felur í sér lækkun bind­ing­ar­hlut­falls fjár­streym­is­tæk­is­ins úr 40 pró­sentum í 20 pró­sent, sam­kvæmt grein­ar­gerð­inni.

Önnur ákvæði regln­anna, svo sem um bind­ing­ar­grunn, bind­ing­ar­tíma og vexti á fjár­streym­is­reikn­ingum eru óbreytt. Í grein­ar­gerð­inni kemur fram að ástæðan fyrir lækkun bind­ing­ar­hlut­falls­ins sé einkum sú að nokkur ríki hafi aðlagað pen­inga­stefnu sína að eðli­legra vaxta­stigi á sama tíma og stýri­vextir Seðla­bank­ans hafi lækkað og séu raunar lágir í sögu­legu sam­hengi. Dregið hafi því úr vaxta­muni við útlönd, sem aftur dragi úr hvata til vaxta­mun­ar­við­skipta.

Seðla­bank­inn greip inn í mark­að­inn

Sam­kvæmt fjár­mála­ráðu­neyt­inu hefur tals­vert dregið úr hreinu inn­streymi erlends fjár­magns vegna nýfjár­fest­ingar á árinu. Inn­flæði í rík­is­skulda­bréf hefur verið hverf­andi og veru­lega hefur dregið úr inn­streymi í skráð hluta­bréf en þau falla ekki undir sér­stöku bindi­skyldu Seðla­bank­ans. Hreint inn­streymi vegna nýfjár­fest­ingar frá árs­byrjun til loka ágúst­mán­aðar nam 21 millj­örðum króna. Á sama tíma í fyrra nam inn­streymið 93 millj­örðum króna.

Velta hefur einnig verið lítil á gjald­eyr­is­mark­aðnum í heild. Heild­ar­velta frá árs­byrjun til loka sept­em­ber, nemur 120 millj­örðum króna, sem er minni velta en á fyrstu þremur mán­uðum síð­ast­lið­inna tveggja ára. Árið 2016 og í upp­hafi árs 2017 keypti Seðla­bank­inn tals­vert af erlendum gjald­eyri á gjald­eyr­is­mark­aði og byggði með því upp gjald­eyr­is­forða sinn en jafn­vel þó leið­rétt sé fyrir inn­gripum Seðla­bank­ans þá er veltan í ár mun minni en und­an­farin ár. 

Fram kemur í grein­ar­gerð­inni að seðla­bank­inn hafi gripið inn í gjald­eyr­is­mark­að­inn í sept­em­ber í fyrsta sinn í ár þegar hann keypti krónur fyrir sem svarar til 1,2 millj­arða króna á einum við­skipta­degi. Bank­inn greip inn í mark­að­inn á ný á einum við­skipta­degi í októ­ber og keypti aftur krónur fyrir sem svarar til 1,2 millj­arða króna. Inn­gripin voru sam­kvæmt ráðu­neyt­inu í sam­ræmi við yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar bank­ans frá 17. maí á síð­asta ári þar sem sagði að Seðla­bank­inn myndi grípa inn í á gjald­eyr­is­mark­aði til að draga úr sveiflum eftir því sem hann teldi til­efni til.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent