Hæstiréttur staðfestir úrskurð Landsréttar – Vilhjálmur þarf ekki að víkja sæti

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Landsréttar þar sem kröfu Ólafs Ólafssonar var hafnað um að landsréttardómarinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson viki sæti í máli hans.

Hæstiréttur
Auglýsing

Hæsti­réttur stað­festi í gær úrskurð Lands­réttar þar sem kröfu Ólafs Ólafs­sonar var hafnað um að lands­rétt­ar­dóm­ar­inn Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son viki sæti í máli hans.

Vil­hjálmur og með­­­dóm­­arar hans í Lands­rétti höfn­uðu því með úrskurði sínum þann 4. októ­ber síð­ast­lið­inn að Vil­hjálmur væri van­hæfur til að dæma í áfrýj­uðu máli um end­­ur­­upp­­­töku Ólafs Ólafs­­son­­ar.

Vil­hjálmur er dóm­­­ari í máli sem áfrýjað var til Lands­réttar þar sem tek­ist er á um kröfu Ólafs um end­­­ur­­­upp­­­­­töku á þætti hans í Al Than­i-­­­mál­in­u. Ólafur Ólafs­­­son krafð­ist þess að Vil­hjálmur viki sæti.

Auglýsing

Í dómi Hæsta­réttar kemur fram að það eitt valdi ekki van­hæfi dóm­ara til með­ferðar einka­máls þótt hann hafi áður dæmt um annað sak­ar­efni í máli, sem aðili fyrr­nefnda máls­ins hefur átt aðild að.

„Því síður leiðir það eitt og sér til van­hæfis dóm­ara til með­ferðar máls þótt ein­hver honum nákom­inn hafi áður komið að rann­sókn eða úrlausn ann­ars sak­ar­efnis sem tengst hefur aðila að mál­inu. Að þessu virtu verður stað­fest sú nið­ur­staða hins kærða úrskurðar að vinna Finns Vil­hjálms­sonar við rann­sókn á vegum rann­sókn­ar­nefndar Alþing­is, sem fjall­aði um þátt­töku þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser Pri­vat­banki­ers KGaA í einka­væð­ingu Bún­að­ar­banka Íslands hf., og skýrslu nefnd­ar­innar um rann­sókn­ina leiði ekki til þess að Vil­hjámi H. Vil­hjálms­syni beri að víkja sæti sem dóm­ari í máli því sem til úrlausnar er fyrir Lands­rétt­i,“ segir í dómn­um.

Krafa Ólafs var byggð á ákvæði í lögum um með­­­­­ferð einka­­­mála sem kveður á um að dóm­­­ari sé van­hæfur til að fara með mál ef fyrir hendi eru „önnur atvik eða aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlut­­­drægni hans með réttu í efa.“

Í því sam­hengi var vísað til þrenns. Í fyrsta lagi myndi Vil­hjálmur vera náinn vinur Mark­úsar Sig­­­ur­­­björns­­­son, sem var einn dóm­enda í Al Thani mál­inu og sat í for­­­sæti í dóm­in­­­um.

Í öðru lagi hefði sonur Vil­hjálms, Ingi Freyr Vil­hjálms­­­son blaða­­­mað­­­ur, ritað tugi blaða­­­greina um Ólaf þar sem jafnan væri fjallað um hann á afar nei­­­kvæðan hátt.

Í þriðja lagi hefði annar sonur Vil­hjálms, Finnur Vil­hjálms­­­son, verið sak­­­sókn­­­ari hjá emb­ætti sér­­­staks sak­­­sókn­­­ara en síðar ráð­inn starfs­­­maður rann­­­sókn­­­ar­­­nefndar Alþingis sem rann­sak­aði sölu á eign­­­ar­hlut rík­­­is­ins í Bún­­­að­­­ar­­­banka Íslands hf. Finnur var annar höf­undar skýrslu sem nefndin sendi frá sér þar sem kom­ist var að þeirri nið­­­ur­­­stöðu að Ólafur hefði beitt stjórn­­­völd blekk­ing­­­um. Erindi frá Ólafi vegna þeirrar máls­­­með­­­­­ferðar allrar er nú til með­­­­­ferðar hjá Mann­rétt­inda­­­dóm­stól Evr­­­ópu.

Í til­kynn­ingu frá Ólafi sem hann sendi frá sér í dag segir hann að hon­um finnst það afar óheppi­legt að nú eigi að fara að dæma í máli hans, máli sem hefur teng­ingu við hrun­ið, og að dóm­ar­inn sé faðir blaða­manns­ins sem hafi haft það sem við­fangs­efni um langt ára­bil að skrifa nei­kvæðar greinar um hann. 

„Þá er mér fyr­ir­munað að skilja, í ljósi þess­arar aðstöðu, hvers vegna Vil­hjálmur kaus ekki strax að hafa ekki afskipti af mál­inu. Það eru jú fimmtán skip­aðir dóm­arar við Lands­rétt og jafnan þrír sem dæma í hverju máli. Það hefði verið ein­fald­asti hlutur í heimi að úthluta mál­inu til ann­ars dóm­ara í stað­inn, án þess að í því fælist nokkur áfell­is­dóm­ur. Þessi vinnu­brögð eru ekki til þess fallin að auka traust mitt á dóm­ur­unum í máli mínu eða íslensku dóms­kerfi yfir­leitt,“ segir hann. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent