Sautján fleiri aðstoðarmenn á Alþingi

Þingflokksformenn funda um fjölgun aðstoðarmanna á Alþingi í dag, ákveðið hefur verið að fjölga þeim um sautján en óvíst er með hvaða hætti það verður gert. Áætlaður kostnaður við fjölgun aðstoðarmanna er um rúmar 120 milljónir.

7DM_5634_raw_170912.jpg alþingi 12. september 2017. þingsæti þingsalur
Auglýsing

Þing­flokks­for­menn munu funda um fjölgun aðstoð­ar­manna þing­flokk­ana í dag en stefnt er að fjölga þeim um sautján. Sama­staða er á meðal flokka á þingi um það að fjölga aðstoð­ar­mönnum en ekki hefur náðst sam­komu­lag um hvernig aðstoð­ar­mönn­unum verður deilt niður á þing­flokk­ana. ­Stefnt er að því að ljúka mál­inu áður en umræður um fjár­lög fara á fullt á ný. Frétta­blaðið greinir frá þessu í dag.

For­menn þing­flokka hafa und­an­farið rætt hvernig skuli standa að úthlutun þeirra aðstoð­ar­manna sem til stendur að bæta við. Sam­kvæmt núver­andi til­lögur gera ráð fyrir að aðstoð­ar­menn­irnir deilist niður á þing­flokk­ana í sam­ræmi við þing­styrk þeirra en að auki fái hver flokkur rit­ara. Stefnt er að því að aðstoð­ar­mönnum fjölgi í þrepum þannig að hluti bæt­ist við nú um ára­mótin og síðan á ný þegar árin 2020 og 2021 ganga í garð.

Kostn­að­ur­inn 120 millj­ónir

Í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2019 er gert ráð fyrir að fjár­heim­ildir til Alþingis verði auknar um rúmar 120 millj­ónir til að auka aðstoð við þing­flokka og þing­menn. Þing­flokkar geta áfram ráðið sér aðstoð­ar­menn á eigin kostn­að. For­sætis­nefnd sam­þykkti fyr­ir­hug­aða fjölgun í sumar en með henni er stefnt að því að efla Alþingi.

Auglýsing

Núver­andi reglur um aðstoð­ar­menn þing­flokk­ana er að for­menn stjórn­mála­flokka, sem eiga sæti á Alþingi og eru ekki jafn­framt ráð­herr­ar, eiga rétt á að ráða sér aðstoð­ar­mann í fullt starf. Ásamt for­mönnum stjórn­mála­flokka eiga alþing­is­menn, sem kjörnir eru í Norð­vest­ur-, Norð­aust­ur- og Suð­ur­kjör­dæm­um, sem eru ekki jafn­framt ráð­herrar eða for­menn stjórn­mála­flokka, eiga rétt á að ráða sér aðstoð­ar­mann í þriðj­ungs-­starfs­hlut­falli.

Aðstoð­ar­menn rík­is­stjórn­ar­innar hafa aldrei verið fleiri

Í sumar kom fram í svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni, um aðstoð­ar­menn ráð­herra og annað aðstoð­ar­fólk, að alls hefðu 24 aðstoð­ar­menn ráð­herra og rík­is­stjórnar verið ráðnir á grund­velli laga um Stjórn­ar­ráð Íslands og nú séu starf­andi alls 22 aðstoð­ar­menn ráð­herra og rík­is­stjórnar en hámarkið er 25. 

Þetta er hæsti fjöldi aðstoð­ar­manna en þeim hefur verið fjölgað smá saman síðan við sam­þykkt nýrra laga um Stjórn­ar­ráð Íslands árið 2011 voru heim­ildir til ráðn­ingar aðstoð­ar­manna ráð­herra og rík­is­stjórnar auknar frá því sem áður hafði ver­ið. Með þeim breyt­ingum sem þá voru gerðar fékk hver ráð­herra í rík­is­stjórn heim­ild til að ráða tvo aðstoð­ar­menn án aug­lýs­ing­ar. Að auki var mælt fyrir um sér­staka heim­ild til handa rík­is­stjórn til að taka ákvörðun um ráðn­ingu þriggja til við­bót­ar.

Áætl­aður heild­ar­kostn­aður vegna aðstoð­ar­manna ráð­herra og rík­is­stjórnar miðað við 22 aðstoð­ar­menn er 427 millj­ónir króna fyrir árið 2018. Sam­kvæmt fjár­laga­frum­varp­inu fyrir árið 2019 hækkar launa­liður rík­is­stjórn­ar­innar um tæpar 175 millj­ónir króna þar sem aðstoð­ar­mönnum ráð­herra hefur fjölg­að.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent