Krónan veikist enn - Evran yfir 140 krónur og Bandaríkjadalur 125

Gengi krónunnar hefur veikst hratt að undanförnu, og hélt sú þróun áfram á markaði í dag.

peningar
Auglýsing

Gengi krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum hélt áfram að veikj­ast á mark­aði í dag. Evra kostar nú 141 krónu, Banda­ríkja­dalur tæp­lega 125 krónur og breskt pund 161 krón­u. 

Þetta er umtals­verð breyt­ing á skömmum tíma, en fyrir innan við hálfu ári kost­aði evran 120 krónur og Banda­ríkja­dalur um 100 krón­ur.

Eins og sjá má hér, á þessari mynd frá vefnum Keldunni, þá hefur gengi krónunnar veikst nokkuð á markaði í dag.Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað í síð­ustu viku að hækka meg­in­vexti bank­ans úr 4,25 pró­sent í 4,5 pró­sent, og var það meðal ann­ars vegna vænt­inga um meiri verð­bólgu. Hún mælist nú 2,8 pró­sent, en spár gera ráð fyrir að hún hækki nokkuð á næstu miss­erum og verði tölu­vert yfir mark­miði, á bil­inu 3,5 til 5 pró­sent, á næsta ári. 

Auglýsing

Meðal ástæðna fyrir auknum verð­bólgu­þrýst­ingi er veik­ing krón­unn­ar, sem ýtir undir hækk­andi verð­lag, einkum á inn­fluttum vörum og inn­fluttri þjón­ust­u. 

„Horfur eru á að verð­bólga haldi áfram að aukast og verði nokkuð yfir mark­miði á næsta ári. Þá hafa verð­bólgu­vænt­ingar hækkað und­an­farið og eru nú yfir mark­miði á alla mæli­kvarða. Verð­bólgu­horfur hafa því versnað en á móti vega horfur á að hraðar dragi úr vexti efna­hags­um­svifa en áður var talið. ­Aukin verð­bólga og hærri verð­bólgu­vænt­ingar síð­ustu mán­uði hafa lækkað raun­vexti Seðla­bank­ans umfram það sem æski­legt er í ljósi núver­andi efna­hags­á­stands og -horfa. Því er nauð­syn­legt að hækka vexti bank­ans nú.

Pen­inga­stefnan mun á næst­unni ráð­ast af sam­spili minni spennu í þjóð­ar­bú­skapn­um, launa­á­kvarð­ana og þró­unar verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga.

Pen­inga­stefnu­nefnd ítrekar að hún hefur bæði vilja og þau tæki sem þarf til að halda verð­bólgu við mark­mið til lengri tíma lit­ið. Haldi verð­bólgu­vænt­ingar áfram að hækka og fest­ist í sessi umfram mark­mið mun það kalla á harð­ara taum­hald pen­inga­stefn­unn­ar. Aðrar ákvarð­an­ir, einkum á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­mál­um, hafa þá áhrif á hversu mik­ill fórn­ar­kostn­aður verður í lægra atvinnustig­i,“ segir meðal ann­ars í yfir­lýs­ingu Pen­inga­stefnu­nefnd­ar, vegna vaxta­hækk­un­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent