Samþykkt að lækka hlutafé Marel um sjö prósent

Hluthafafundur Marel ákvað að lækka hlutafé félagsins til hagsbóta fyrir hluthafa, en félagið er nú með tvíhliða skráningu félagsins í undirbúningi.

Árni Oddur Þórðarson
Auglýsing

Til­lögur stjórnar Mar­els til hlut­hafa­fund­ar­fundar voru sam­þykktar í gær, en ákveðið var að lækka hlutafé félags­ins um 52,9 millj­ónir hluta, eða sem nemur um 7 pró­sentum af útgefnu hlutafé félags­ins. Það er lækkun úr 735,5 millj­ónum hluta, í 682,6 millj­ónir hluta. 

Þetta er gert til að bæta hag hlut­hafa félags­ins fyrir fyr­ir­hug­aða tví­hliða skrán­ingu félags­ins, en eins og greint hefur verið frá þá er Marel nú að velja á milli kaup­hall­anna í Kaup­manna­höfn, Amster­dam og London, fyrir skrán­ingu erlend­is. 

Félagið hefur verið að kaupa eigin hluti und­an­farin miss­eri, og er lækk­unin á hluta­fénu eðli­leg í því ljósi. Eyrir Invest er stærsti ein­staki hlut­hafi félags­ins með 25,9 pró­sent hlut. 

Auglýsing

Tvær til­lögur voru á dag­skrá fund­ar­ins, þ.e. fyrr­nefnd til­laga um lækkun á eigin hlutum félags­ins, og einnig til­laga um heim­ild til stjórnar félags­ins til þess að setja upp form­lega end­ur­kaupa­á­ætl­un. Engin önnur mál voru borin upp á dag­skrá fund­ar­ins. 

Frá þessum áformum hafði þegar verið greint í til­kynn­ingu frá félag­inu til kaup­hall­ar, en nákvæm­lega hversu mikil lækk­unin á hluta­fénu myndi verða, koma ekki fram fyrr en á hlut­hafa­fund­in­um.

Í fyrri til­kynn­ingum frá félag­inu kom fram, að sam­hliða áætl­­unum félags­­ins um tví­­hliða skrán­ingu, gerir stjórn félags­­ins ráð fyrir að óska eftir heim­ild hlut­hafa á aðal­­fundi félags­­ins árið 2019 til að hækka heild­­ar­hlutafé félags­­ins um allt að 15%, í þeim til­­­gangi að styðja við árang­­ur­s­­ríka skrán­ingu á erlendum mark­aði, virka verð­­myndun og selj­an­­leika bréf­anna.

Lækk­unin verður fram­kvæmd með lækkun á eigin hlutum félags­ins sem nema fram­an­greindri fjár­hæð, að upp­fylltum skil­yrðum laga um hluta­fé­lög, segir í til­kynn­ingu félags­ins til kaup­hallar.

Hvað varðar síð­ari til­lög­una, þá ákvað hlut­hafa­fundur að heim­ila stjórn að kaupa eigin hluti í félag­inu með fram­kvæmd end­ur­kaupa­á­ætl­un­ar, í skiln­ingi laga nr. 108/2007 um verð­bréfa­við­skipti. „Fjöldi hluta sem keyptur skal sam­kvæmt end­ur­kaupa­á­ætl­un­inni verður að hámarki 34.129.296 hlut­ir, en það jafn­gildir 5% af útgefnu hlutafé félags­ins,“ segir í til­kynn­ingu frá félag­in­u. 

Mark­aðsvirði Marel er nú um 280 millj­­arðar króna, en eins og greint var frá á vef Kjarn­ans á verð­­metur grein­ing­­ar­­fyr­ir­tækið Stockvi­ews í London Marel á umtals­vert meira, eða sem nemur um 433 millj­­örð­um, sé horft til næstu tólf mán­aða í rekstr­in­­um. Félagið er lang­sam­lega verð­mætasta skráða félagið á Íslandi, og eru starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins nú tæp­lega 6 þús­und á heims­vísu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent