Viðskipti stöðvuð með bréf í Icelandair – Kaupa meirihluta í Cabo Verde Airlines

Dótturfélag Icelandair Group hefur lagt fram bindandi kauptilboð í ríkisflugfélag Grænhöfðaeyja.

icelandair_737MAX_big2.jpg
Auglýsing

Við­skipti með bréf í Icelandair Group voru stöðvuð í morgun Það var gert að beiðni Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Beiðni um það kom klukkan 10:21 í morg­un.

Icelandair Group til­kynnti í gær að til­kynnt var um að dótt­ur­fé­lag félags­ins, Loft­leiðir Iceland­ic, hefði ásamt íslenskum fjár­festum gert bind­andi til­boð í 51 pró­sent hlut í rík­is­flug­fé­lag­inu Cabo Verde Air­lines á Græn­höfða­eyj­um. Kaup­verðið er trún­að­ar­mál, það verður að hluta til greitt með vinnu sem starfs­menn Loft­leiða Icelandic hafa þegar innt af hendi og hið keypta mun ekki verða hluti af sam­stæðu­reikn­ingi Icelandic Group.

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem við­skipti með bréf í Icelandair Group eru stöðv­uð, en það gerð­ist einnig þegar félagið til­kynnti um kaup á WOW air fyrr í mán­uð­in­um. Þá voru við­skiptin reyndar ekki stöðvuð strax og virði bréfa í félag­inu hafði hækkað um tugi pró­senta áður en stöðv­unin var fram­kvæmd. Þannig var málum ekki háttað í morgun og lítil við­skipti höfðu átt sér stað með bréf í Icelandair Group það sem af er degi, eða fyrir 25 millj­ónir króna. Bréfin höfðu hækkað um 1,88 pró­sent.

Auglýsing
Í til­kynn­ingu frá Icelandair Group vegna til­boðs­ins í Cabo Verde Air­lines segir að í ágúst 2017 hafi Loft­liðir Icelandic gert „samn­ing við stjórn­völd á Græn­höfða­eyjum um end­ur­skipu­lagn­ingu Cabo Verde Air­lines. Mark­mið sam­komu­lags­ins var jafn­framt að styrkja alþjóða­flug­völl­inn á Græn­höfða­eyj­um, að byggja eyj­arnar upp sem væn­legan áfanga­stað og að byggja upp tengiflugs­banka fyrir alþjóða­flug. Þá lá jafn­framt fyrir að hugað væri að einka­væð­ingu félags­ins. Cabo Verde Air­lines hefur nú þegar rekstr­ar­leyfi til að fljúga áætl­un­ar­flug til Evr­ópu og Banda­ríkj­anna.“

Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, ræddi stöðvun við­skipta með bréf í Icelandair vegna kaupana á WOW air í þætt­inum 21 á Hring­braut í síð­ustu viku. Þar sagði hann að það hefði aldrei komið til greina að stöðva við­­skiptin með bréf í lengri tíma en gert var þann dag sem til­­kynnt var um vænta yfir­­­töku. „Það er algjört prinsipp hjá okkur að stöðva við­­skipti í eins stuttan tíma og hægt er. Það er ein­fald­­lega svo mikil vernd í því fyrir þá sem eiga hluta­bréf í skráðum félögum að vita af því að þeir geti ávallt selt sinn hlut. Þetta er svo mik­il­vægur hluti af rétt­indum hlut­hafa. Að okkar mati var engin for­­senda fyrir því.“

Hægt er að horfa á stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent