FME: Óheimilt að nýta lífeyrissjóði í kjarabaráttu

Fjármálaeftirlitið sendi frá sér yfirlýsingu, þar sem fram kemur að um lífeyrissjóði landsins gildi ströng lög sem verði að fara eftir. Ekki sé hægt að nýta þá með öðrum hætti en lög og stefnur þeirra gera ráð fyrir.

fme.jpg
Auglýsing

Í yfir­lýs­ingu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, á vef þess, segir að óheim­ilt sé að nýta líf­eyr­is­sjóði með öðrum hætti en lög um þá gera ráð fyr­ir. 

Í yfir­lýs­ing­unni er vísað til umfjöll­unar í fjöl­miðl­um, en gera má ráð fyrir að þar sé átt við við­tal við Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­mann VR, í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik á RÚV, þar sem hann ræddi um þann mögu­leika að verka­lýðs­hreyf­ingin nýtti  sér stöðu sína í líf­eyr­is­sjóðum til að láta til sín taka í kjara­bar­áttu.

Orð­rétt sagði Ragnar í þætt­in­um: 

Auglýsing

„Við erum líka aðilar að íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu. Við erum að borga hátt í 20 millj­arða á ári í umsýslu­kostnað inn í fjár­mála­kerf­ið. Og af hverju getum við ekki sett fjár­mála­kerfið okkar í verk­fall? Af hverju getum við ekki beitt áhrifum okkar inni í líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu – beinum þá til­mælum til okkar stjórn­ar­manna að skrúfa fyrir allar fjár­fest­ingar á meðan óvissa eða samn­ingar eru laus­ir?“

Í til­kynn­ingu FME seg­ir: 

„Vegna umfjöll­unar í fjöl­miðlum vill Fjár­mála­eft­ir­litið minna á þær kröfur sem gerðar eru sam­kvæmt lögum til starf­semi líf­eyr­is­sjóða. Líf­eyr­is­sjóðir veita við­töku iðgjaldi til greiðslu líf­eyris vegna elli, örorku eða and­láts og lýtur starf­semi þeirra að mót­töku, varð­veislu og ávöxtun iðgjalda og greiðslu líf­eyr­is. Líf­eyr­is­sjóðum er óheim­ilt að stunda aðra starf­semi en þá sem nauð­syn­leg er til að ná fram­an­greindum til­gangi, skv. 20. gr. laga nr. 129/1997 um skyldu­trygg­ingu líf­eyr­is­rétt­inda og starf­semi líf­eyr­is­sjóða, sbr. 2. mgr. 1. gr. sömu laga. 

Í 29. gr. laga nr. 129/1997  kemur fram að stjórn líf­eyr­is­sjóðs ber ábyrgð á að starf­semi sjóðs­ins sé í sam­ræmi við nefnd lög, reglu­gerðir settar sam­kvæmt þeim og sam­þykktir sjóðs­ins. Þá setur stjórn líf­eyr­is­sjóðs honum fjár­fest­ing­ar­stefnu, sbr. 1. mgr. 36. gr. nefndra laga og ber við þá vinnu að hafa hags­muni allra sjóð­fé­laga að leið­ar­ljósi. Fram­kvæmda­stjóri líf­eyr­is­sjóðs ber ábyrgð á því að fjár­fest­ing­ar­stefnu stjórnar sé fram­fylg­t. 

Sam­kvæmt 4. mgr. 44. gr.  laga nr. 129/1997 skal Fjár­mála­eft­ir­litið hafa eft­ir­lit með því hvort starf­semi líf­eyr­is­sjóðs sé að ein­hverju leyti óeðli­leg, óheil­brigð eða ótraust. Við mat á fram­an­greindu lítur Fjár­mála­eft­ir­litið m.a. til ákvæða laga nr. 2/1995, um hluta­fé­lög, en í 76. gr. þeirra laga segir „Fé­lags­stjórn, fram­kvæmda­stjóri og aðrir þeir er hafa heim­ild til að koma fram fyrir hönd félags­ins mega ekki gera neinar þær ráð­staf­anir sem eru fallnar til þess að afla ákveðnum hlut­höfum eða öðrum ótil­hlýði­legra hags­muna á kostnað ann­arra hlut­hafa eða félags­ins.

Með hlið­sjón af fram­an­greindu telur Fjár­mála­eft­ir­litið að stjórn­ar­mönnum líf­eyr­is­sjóða sé óheim­ilt að beita sér fyrir því að líf­eyr­is­sjóðir séu nýttir í öðrum til­gangi en þeim sem að framan var lýst.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent