„Núverandi fyrirkomulag er algjörlega ófullnægjandi“

Þingmaður Viðreisnar og áheyrnarfulltrúi í forsætisnefnd segir að fyrirkomulag á endurgreiðslu útlagðs kostnaðar þingmanna sé allt of laust í reipunum hjá Alþingi.

Þorsteinn Víglundsson.
Þorsteinn Víglundsson.
Auglýsing

Nið­ur­staða for­sætis­nefndar Alþing­is, að hún telji ekki skil­yrði til staðar fyrir því að fram fari almenn rann­­sókn á end­­ur­greiddum akst­­ur­s­­kostn­aði þing­­manna, felur ekki í sér neina stað­fest­ingu þess að fyr­ir­komu­lag þess­ara mála sé í lagi á þing­inu. Þetta segir Þor­steinn Víglunds­son þing­maður Við­reisnar og áheyrn­ar­full­trúi í nefnd­inni á Face­book-­síðu sinni í dag. 

Í frétt Kjarn­ans frá því í gær kemur fram að for­­sæt­is­­nefnd Alþingis telji ekki skil­yrði til staðar fyrir því að fram fari almenn rann­­sókn á end­­ur­greiddum akst­­ur­s­­kostn­aði þing­­manna. Þá hefur for­­sæt­is­­nefnd kom­ist að þeirri nið­­ur­­stöðu að sú athugun sem þegar hefur farið fram á end­­ur­greiddum akst­­ur­s­­kostn­aði Ásmundar Frið­­riks­­son­­ar, þing­­manns Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, ásamt skýr­ingum Ásmundar á akstr­in­um, „leiði til þess að ekk­ert hafi komi fram sem gefi til kynna að hátt­erni hans hafi verið and­­stætt siða­­reglum fyrir alþing­is­­menn.“

Nefndin telur einnig að ekki hafi komið fram neinar upp­­lýs­ingar eða gögn sem sýni að til staðar sé grunur um að refsi­verð hátt­­semi hafi átt sér stað við fram settar kröfur um end­­ur­greiðslur vegna akst­­ur­s­­kostn­aðar sem kæra beri sem meint brot til lög­­­reglu. Þetta kemur fram í svari for­­sæt­is­­nefndar við erindi Björns Levís Gunn­­ar­s­­son­­ar, þing­­manns Pírata. Undir það skrifar Stein­grímur J. Sig­­fús­­son, for­­seti Alþing­­is. 

Björn Leví skil­aði inn end­­­ur­­­teknu erindi til for­­­sæt­is­­­nefndar í lok októ­ber þar sem kom fram að hann teldi að rann­saka þyrfti allar end­­­ur­greiðslu­­­færslur á akst­­­ur­s­­­kostn­aði þing­­­manna. Í þetta skipt­ið bað hann sér­­­stak­­­lega um að end­­­ur­greiðslur á akst­­­ur­s­­­kostn­aði Ásmundar Frið­­­riks­­­son­­ar yrðu rann­sak­að­­­ar.

Auglýsing

Þor­steinn segir að það væri kannski nær lagi að segja að reglur um þessi mál væru svo loðnar og óljósar að í raun sé engin leið að full­yrða hvort þing­menn séu að fara eftir þeim eða ekki.

„Stað­reyndin er sú að fyr­ir­komu­lag á end­ur­greiðslu útlagðs kostn­aðar er allt of laust í reip­unum hjá Alþingi. Með þessum orðum er ég ekki að leggja neinn dóm á greiðslur til ein­stakra þing­manna, heldur ein­fald­lega benda á að núver­andi fyr­ir­komu­lag er algjör­lega ófull­nægj­andi að mínu vit­i,“ segir hann. 

Björn Leví á hrós skilið

Þor­steinn telur alvar­leg­ast að í núver­andi fyr­ir­komu­lagi sé ekki að finna neina afmörkun milli per­sónu­legs kostn­aðar vegna þátt­töku í próf­kjörum eða kosn­inga­bar­áttu. „Það hlýtur að vera í hæsta máta óeðli­legt að þing­menn geti háð kosn­inga­bar­áttu sína á kostnað þings­ins. Aðstöðu­mun­ur­inn gagn­vart öðrum fram­bjóð­endum sem ekki eiga sæti á þingi er aug­ljós og mjög óeðli­leg­ur.“

Hann segir það vera löngu tíma­bært að taka þessar reglur til end­ur­skoð­un­ar. „Við alþing­is­menn eigum ekki að vera með óút­fylltan tékka frá Alþingi til fjár­út­láta vegna fund­ar­sókna og ferða­laga. Það er þvert á móti mjög eðli­legt að mínu viti að þar séu settar mjög skýrar leik­reglur um hvað og hversu mikið eðli­legt sé að þingið end­ur­greiði.

Til að kór­óna allt njóta þing­menn í raun skatt­fríð­inda af greiðslum sem sam­kvæmt hefð­bund­inni túlkun Rík­is­skatt­stjóra teld­ist til skatt­skyldra hlunn­inda vegna ákvæða í lögum um Þing­far­ar­kaup þar að lút­andi. Björn Leví Gunn­ars­son á hrós skilið fyrir bar­áttu sína í þessum efn­um. Hans bar­átta hefur fyrst og fremst beinst að greiðslum til þing­manna almennt. Og sú bar­átta hefur skilað auknu gagn­sæi og örugg­lega tals­vert betri með­ferð á opin­beru fé,“ segir Þor­steinn. 

Nið­ur­staða For­sætis­nefndar Alþingis felur ekki í sér neina stað­fest­ingu þess að fyr­ir­komu­lag þess­ara mála sé í lagi á...

Posted by Þor­steinn Viglunds­son on Wed­nes­day, Novem­ber 28, 2018



„Al­var­­leg­ur leki“ úr for­­sæt­is­­nefnd

Í frétt mbl.is kemur fram að Stein­grím­ur J. Sig­­fús­­son for­­seti Alþing­is kann­ist ekki við að for­­sæt­is­­nefnd hafi rætt það á fundi sín­um að Björn Leví Gunn­­ar­s­­son þing­maður Pírata yrði mög­u­­lega lát­inn sæta ábyrgð sam­­kvæmt siða­regl­um fyr­ir að hafa sent er­indi til nefnd­­ar­inn­ar um akst­­ur­s­greiðslur til þing­­manna.

„Ég kann­­ast ekki við hót­­un af einu eða neinu tagi. Það er af­­bök­un á því sem þarna fór fram,“ seg­ir Stein­grím­­ur, sem vill ann­­ars ekki ræða þetta mál frek­ar þar sem umræða í við­kvæm­um mál­um í for­­sæt­is­­nefnd sé trún­að­ar­­­mál. Fund­­ar­­gerðir for­­sæt­is­­nefnd­ar eru trún­að­ar­­­mál. Við virð­umst búa í þessu til­­viki við mjög al­var­­leg­an leka út úr for­­sæt­is­­nefnd,“ seg­ir hann og kveðst harma það í sam­tali við mbl.­is. 

Fram kom í til­­kynn­ingu frá Pír­öt­um á mán­u­dag að óheim­ilt sé sam­­kvæmt siða­regl­um að láta Björn Leví sæta ábyrgð í mál­inu. Rök­­stutt er­indi um brot á regl­un­um megi aldrei bitna á send­anda þess. „Þessi hót­­un get­ur haft al­var­­leg fæl­ing­ar­á­hrif og tak­­markað veru­­lega áhrifa­mátt siða­regln­anna,“ seg­ir í til­­kynn­ing­unni.

Þing­maður óskar eftir að leynd af minn­is­blaði verði aflétt

Jón Þór Ólafs­son þing­maður Pírata segir Stein­grím fara rang­lega með trún­að­ar­skyldur for­sætis­nefndar í frétt­um. Þetta kemur fram í tölvu­pósti til fjöl­miðla sem hann sendi í dag. 

Þar kemur enn fremur fram að hann hafi óskað eftir minn­is­blaði frá skrif­stofu Alþingis um „Trún­að­ar­skyldur for­sætis­nefnd­ar­manna“ í árs­byrjun 2017. Það minn­is­blað sýni svart á hvítu að Stein­grímur fari með rangt mál.

Jón Þór hefur því sent for­seta Alþingis póst þar sem hann óskar eftir því að hann aflétti leynd af því minn­is­blaði og birti það opin­ber­lega.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent