Sigmundur Davíð: Alvarlegast ef á Íslandi séu stundaðar hleranir á einkasamtölum stjórnmálamanna

Formaður Miðflokksins hefur birt stöðufærslu vegna frétta sem byggja á upptökum á samtölum hans við aðra þingmenn. Hann líkir upptökunum við því þegar útsendarar blaðsins News of the World hleruðu símtöl stjórnmálamanna og annars þekkts fólks.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins.
Auglýsing

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hefur birt stöðu­færslu á Face­book-­síðu sinni þar sem hann fjallar um fréttir sem unnar voru upp úr upp­tökum sem náðum af sam­tölum hans, ann­arra þing­manna úr Mið­flokknum og tveggja þing­manna úr Fólki flokks­ins. 

Á upp­tök­unum tala þing­menn­irnir frjáls­lega og með niðr­andi hætti um aðra þing­menn, um veit­ingu sendi­herra­stöðu auk þess sem þing­menn Mið­flokks­ins reyna að sann­færa þing­menn Flokks fólks­ins sem eru við­staddir að ganga til liðs við sig.

Þeir sem voru við­staddir þegar upp­takan var gerð, á hót­el­bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, voru Sig­mundur Dav­íð, Gunnar Bragi Sveins­son, Berg­þór Óla­son og Anna Kol­brún Árna­dóttir úr Mið­flokki og Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son úr Flokk fólks­ins.

Auglýsing
Í stöðu­upp­færsl­unni segir Sig­mundur Davíð að í frétt­unum ægi öllu sam­an. „Í sumu af því sem hefur birst er vilj­andi eða óvilj­andi rang­hermt um hvað er verið að ræða og hver segir hvað. Sam­töl þing­manna sem sitja saman á góðri stund og grín­ast hver við annan eru auk þess látin hljóma eins og póli­tískt plott. Sam­tal sem ég var sagður hafa átt við Ólaf Ísleifs­son um að hann yrði þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins var unnið upp úr sam­ræðum milli ann­arra manna um aðra hluti í léttum dúr og fór fram eftir að Ólafur var far­inn.“

Alvar­leg­ast finnst Sig­mundi Davíð ef raunin sé sú að á Íslandi sé farið að stunda hler­anir á einka­sam­tölum stjórn­mála­manna. „Hafi verið gerð hljóð­upp­taka af fundi þeirra sex þing­manna sem þar eru nefndir hlýtur það að telj­ast alvar­legt mál. Hóp­ur­inn sem vísað er til sat einn úti í horni og því ekki um annað að ræða en að brot­ist hafi verið inn í síma ein­hvers þeirra sem þarna voru staddir eða beitt hler­un­ar­bún­aði.

Ég man ekki eftir dæmi um slíkt í íslenskri stjórn­mála­sögu og aðeins einu dæmi frá Bret­landi. Það var þegar útsend­arar blaðs­ins News of the World hler­uðu sím­töl stjórn­mála­manna og ann­ars þekkts fólks. Það athæfi var litið alvar­legum augum og gripið til aðgerða í sam­ræmi við það. Ég vona að sú verði raunin á Íslandi líka. Ann­ars eru Íslensk stjórn­mál og íslenskt sam­fé­lag gjör­breytt.“

Í kvöld birt­ust ótrú­legar fréttir sem sagðar eru unnar upp úr leyni­legri hljóð­upp­töku af sam­tölum þing­manna Mið­flokks­ins...

Posted by Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son on Wed­nes­day, Novem­ber 28, 2018


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent