Bergþór Ólason bað Ingu Sæland afsökunar

Þingmaður Miðflokksins hefur beðið Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, afsökunar á því hvernig hann talaði um hana í samtali við aðra þingmenn Miðflokksins á bar.

Bergþór Ólason
Auglýsing

Berg­þór Óla­son, þing­maður Mið­flokks­ins, skrifar á Face­book síðu sína í kvöld,  að hann hafi nú þegar beðið Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, afsök­unar á því hvernig hann tal­aði um hana í sam­tali við aðra þing­menn flokks­ins á bar nýver­ið. 

Stundin segir frá því að Berg­þór Óla­­son hafi kallað Ingu Sæland, for­­mann og stofn­anda Flokks fólks­ins, „húrr­andi klikk­­aða kunt­u“. 

DV og Stundin fengu upp­tök­urnar sendar nafn­laust og hafa í kvöld skrifað fréttir upp úr þeim, en í fréttum þeirra hefur meðal ann­ars komið fram að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Berg­þór Óla­son og Gunnar Bragi Sveins­son, hafi talað með niðr­andi hætti um stjórn­mála­konur

Auglýsing

„Í kvöld hafa verið fluttar fréttir af hitt­ingi sex þing­manna á hót­el­bar í lið­inni viku. Eins og fram hefur komið varð mér þar hressi­lega á í mess­unni hvað munn­söfnuð varð­ar, í garð mann­eskju sem hafði ekk­ert sér til sakar unnið til að verð­skulda þá yfir­haln­ingu. Þar virð­ist ég hafa notað orð­færi sem er mér fram­andi og ég veit ekki til að ég hafi áður not­að.

Ég ræddi við Ingu Sæland í kvöld og bað hana afsök­unar á fram­göngu minni. Um sam­starfið við Flokk fólks­ins vil ég segja að það hefur verið með miklum ágætum síð­asta árið, enda mál­efna­legur sam­hljómur um marga hluti.

Flest þekkjum við að hafa í lok­uðu rými talað óvar­lega, og jafn­vel af ósann­girni um annað fólk, þá sér­stak­lega þegar öl er haft um hönd, en það breytir því ekki að svona á maður ekki að tala um fólk,“ segir Berg­þór Óla­son á Face­book síðu sinni.

Sig­mundur Davíð hefur þegar tjáð sig um málið á Face­book síðu sinni, og segir það alvar­legt ef það eru stund­aðar hler­anir á einka­sam­tölum stjórn­mála­manna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent