Tryggja þurfi sjálfstæði seðlabankans með lögum og gera til hans miklar kröfur

Nefndarmaður í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands segir í ítarlegri grein í Vísbendingu að gera þurfi miklar kröfur til eigi að geta orðið seðlabankastjórar.

selabankinn_15802550250_o.jpg
Auglýsing

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands og nefnd­ar­maður í Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, segir í ítar­legri grein í Vís­bend­ingu, sem kom til áskrif­enda í dag, að mik­il­vægt sé að end­ur­skoðuð lög um starf­semi Seðla­banka Íslands treysti sjálf­stæði hans í sessi. 

Hann segir lögin þurfa að vera skýr hvað sjálf­stæðið varð­ar, og en að þau þurfi jafn­framt að gera kröfur til bank­ans sem lyk­il­stofn­unar í íslensku sam­fé­lagi. Vel geti komið til greina að seðla­banka­stjóri komi erlendis frá, en reynslan af erlendum nefnd­ar­mönnum í pen­inga­stefnu­nefnd hafi verið góð, að sögn Gylfa.

Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði.„Það er ein­föld ástæða fyrir því að seðla­bönkum er gefið sjálf­stæði. Ástæðan er sú að þannig er unnt að treysta því best að þeir tryggi lága verð­bólgu þegar til lengri tíma er litið þótt það kosti óvin­sælar aðgerðir til skamms tíma. Reynslan hefur sýnt að verð­bólga er lægst í þeim löndum þar sem seðla­bankar eru sjálf­stæð­ast­ir. Stjórn­mála­menn sem þurfa stöðugt að hafa vin­sældir sínar í huga gætu frekar fallið í þá freist­ingu að kaupa sér vin­sældir til skamms tíma með vaxta­lækk­unum sem örv­uðu efna­hags­lífið þótt verð­bólga hækki þegar til lengri tíma er lit­ið. Þess vegna væri þeim síður treyst til þess að við­halda lægri verð­bólgu.

Auglýsing

Mikil við­brögð við 25 punkta vaxta­hækkun Seðla­bank­ans í byrjun nóv­em­ber er skýrt dæmi þess hve erfitt væri fyrir stjórn­mála­menn að bera ábyrð á pen­inga­stefnu sem eðli máls sam­kvæmt krefst jafn oft vaxta­hækk­unar og vaxta­lækk­un­ar.

Seðla­banka Íslands var veitt sjálf­stæði með lögum árið 2001. Það er mik­il­vægt að í nýjum lögum sé slíkt sjálf­stæði tryggt en jafn­framt að hann beri ábyrgð á gerðum sín­um. Hér eru nokkur sem mætti taka til greina til þess að tryggja slíkt sjálf­stæði:

Tryggja verður að seðla­banka­stjóri og aðstoð­ar­banka­stjórar hafi menntun og reynslu á sviði hag­fræði og fjár­mála. Á Íslandi eru gerðar strangar kröfur til hag­fræði­mennt­unar fram­halds­skóla­kenn­ara og verða a.m.k. sömu kröfur að vera gerðar til seðla­banka­stjóra.

En menntun á sviði fjár­mála og hag­fræði tryggir ekki ein og sér hæfi­leika til að taka far­sælar ákvarð­an­ir. Þess vegna er mik­il­vægt að setja reglur um hverjir geti setið í nefndum sem meta hæfi umsækj­enda: að þeir hafi líka a.m.k. sama bak­grunn og kraf­ist er af seðla­banka­stjóra og séu ekki tengdir umsækj­endum eða póli­tískum hags­mun­um. Æski­legt væri að fá erlenda sér­fræð­inga í slíkt nefnd­ar­starf.

Seðla­banka­stjóri Bret­lands er Kanada­maður og hefur reynst vel. Ekk­ert ætti að úti­loka að góður umsækj­andi sem er af erlendu bergi brot­inn geti sótt um starf seðla­banka­stjóra eða aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra. Reynslan af tveimur erlendum rík­is­borg­urum sem setið hafa í pen­inga­stefnu­nefnd síðan árið 2009 er góð.

Ráðn­inga­tími bæði seðla­banka­stjóra, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra og nefnd­ar­manna pen­inga­stefnu­nefndar verður að vera nægi­lega langur til þess að þessir aðilar hugsi til langs tíma og þurfi sem minnst að huga að því hvort ráðn­ing þeirra verði lengd um annað tíma­bil.

Setja verður seðla­banka skýr mark­mið sem síðan er hægt að nota til þess að dæma frammi­stöðu hans. Slík mark­miða­setn­ing gerir einnig auð­veldar að spá fyrir um ákvarð­anir hans,“ segir í Gylfi meðal ann­ars í grein sinni.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent