Langflestir Íslendingar vilja að þingmennirnir sex víki

Flestum finnst að Gunnar Bragi Sveinsson þingmaður Miðflokksins eigi að segja af sér en næstum jafn háu hlutfalli finnst að Bergþór Ólason eigi einnig að gera það.

Gunnar Bragi Sveinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Gunnar Bragi Sveinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Auglýsing

Á milli 74 og 91 pró­sent Íslend­inga eru hlynnt afsögn alþing­is­mann­anna sex í kjöl­far umdeildra sam­skipta sem hljóð­rit­aðar voru þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Flestum finnst að Gunnar Bragi Sveins­son þing­maður Mið­flokks­ins eigi að segja af sér en næstum jafn háu hlut­falli finnst að Berg­þór Óla­son eigi einnig að gera það.

Þetta kemur fram í nýrri könnun Mask­ín­u. 

Rétt innan við þremur af hverjum fjórum finnst að Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, einnig þing­maður Mið­flokks­ins, eigi að segja af sér þing­mennsku en það er lægsta hlut­fall­ið. Það er því ljóst að í öllum til­vikum finnst miklum meiri­hluta lands­manna að þing­menn­irnir ættu að hverfa til ann­arra starfa.

Auglýsing

Í öllum til­vikum eru konur hlynnt­ari afsögn þing­mann­anna en karl­ar. Þeir sem eru eldri en 50 ára eru umburð­ar­lynd­ari gagn­vart því að þing­menn­irnir séu áfram á þingi því 8 til 16 pró­sent þeirra eru and­víg því að þeir segi af sér en 2 til 10 pró­sent í öðrum ald­urs­hóp­um.

Lang­lægst hlut­fall þeirra sem kusu Mið­flokk­inn í síð­ustu alþing­is­kosn­ing­um, þann 28. októ­ber á síð­asta ári, kalla eftir afsögn sex­menn­ing­ana.

Maskína - 3. desember 2018

Svar­endur voru 1.311 tals­ins og komu úr Þjóð­gátt Mask­ínu, sem er þjóð­hópur fólks dreg­inn með til­viljun úr Þjóð­skrá og svarar á net­inu. Svar­endur eru af báðum kynj­um, alls stað­arað af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu. Könn­unin fór fram dag­ana 30. nóv­em­ber - 3. des­em­ber 2018.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent