Örn Alfreðsson nýr framkvæmdastjóri hjá Origo

Origo, áður Nýherji, er skráð á markað og nemur markaðsvirði félagsins nú um ellefu milljörðum króna.

Örn Alfreðsson.jpg
Auglýsing

Örn Þór Alfreðs­son hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­fram­tíð­ar­ Origo og tekur til starfa á næstu dög­um.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­in­u. 

Origo, áður Nýherji, er skráð á mark­að, og nemur mark­aðsvirði félags­ins nú tæp­lega 11 millj­örðum króna. Heild­ar­tekjur félags­ins námu rúm­lega 15 millj­örðum króna í fyrra. 

Auglýsing

Örn er við­skipta­fræð­ingur frá Háskól­anum í Reykja­vík og er með víð­tæka reynslu af stjórnun og rekstri i upp­lýs­inga­tækn­i. 

Hann starf­aði lengi sem fram­kvæmda­stjóri hjá EJS og síðar hjá A­dvani­a þar sem hann var ábyrgur fyrir sölu og ­sam­ræm­ing­u ­mark­aðs­mála fyr­ir­tæk­is­ins. Nú síð­ast starfað­i Örn Þór ­sem fram­kvæmda­stjóri Gler­verk­smiðj­unnar Sam­verk.  Örn situr einnig í stjórn rekstr­ar­fé­lags­ins Virð­ing­ar.   

Helstu verk­efni sviðs­ins lúta að við­skipta­stýr­ing­u,  sölu- og mark­aðs­málum ásamt því að sam­ræma og tryggja gæð­i ­þjón­ustu­upp­lif­un­ar við­skipta­vina félags­ins.  Mark­mið Origo er að veita ávallt afburðar þjón­ustu og vera leið­andi sem sam­starfs­að­ili fyr­ir­tækja um tækni­bún­að, hug­bún­að­ar­lausnir, þjón­ustu og ráð­gjöf á sviði upp­lýs­inga­tækn­i. 

„Það er okkur mik­ill fengur að fá Örn til liðs við Origo teymið.  Hann hefur starfað í upp­lýs­inga­tækni um langt skeið, skilað eft­ir­tekt­ar­verðum árangri og átt sér­lega gott sam­starf við við­skipta­vini, sér­stak­lega í tengslum við umfangs­meiri verk­efn­i.  Það hefur gengið vel hjá Origo að und­an­förnu, við höfum styrkt og víkkað út þjón­ustu­fram­boð okkar fyrir núver­andi og nýja við­skipta­vin­i.  Það eru því bæði áhuga­verð og krefj­andi verk­efn­i framund­an, sér­stak­lega í ljósi örra tækni­breyt­inga og tæki­færa sem þær skapa fyrir atvinnu­líf í umbreyt­ing­arfasa.  Þekk­ing Arnar á því hvernig fyr­ir­tæki geta nýtt verk­færi upp­lýs­inga­tækni til að gera betur og skapa sér for­skot, er mik­ils virði fyrir okkar við­skipta­vini og þess vegna einnig fyr­ir­ Origo,” segir Finnur Odds­son, for­stjóri Origo, í til­kynn­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent