Sveinn hafnar því að upplýsingagjöf hafi verið léleg af sinni hálfu

Fyrrverandi for­stjóri Matís hafnar því að upplýsingagjöf til stjórnar Matís hafi verið léleg af sinni hálfu. Hann segir að þeir sem þekkja til hans viti að hann leggi mikið upp úr hagnýtingu upplýsinga.

Sveinn Margeirsson
Sveinn Margeirsson
Auglýsing

Sveinn Mar­­geir­s­­son fyrr­ver­andi for­­stjóri Mat­ís hafnar því að upp­lýs­inga­gjöf til stjórnar Matís hafi verið léleg af sinni hálfu. Frá þessu greinir hann í stöðu­upp­færslu á Face­book-­síðu sinni í dag. Hann segir að þeir sem þekkja til hans viti að hann leggi mikið upp úr hag­nýt­ingu upp­lýs­inga. Dokt­ors­rit­gerð hans hafi snú­ist um hag­nýt­ingu upp­lýs­inga í virð­is­keðju sjáv­ar­af­urða. „Við hjónin not­uðum opin­berar upp­lýs­ingar til að fletta ofan af Exeter Hold­ings mál­inu árið 2009. Sam­starf Matís við Advania um þróun Blockchain lausnar í því augna­miði að miðla upp­lýs­ingum bænda um lamba­kjöt til neyt­enda var mín hug­mynd. Þannig mætti áfram telja,“ segir hann á Face­book. 

Sveinn lét af störf­um eftir átta ára starf síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Sjöfn Sig­­ur­gísla­dótt­ir for­maður stjórn­­ar Matís stað­festi í sam­tali við Kjarn­ann að honum hefði verið sagt upp og sagði að samið hefði verið um starfs­lok. 

Í stöðu­upp­færslu sinni seg­ist hann telja sig knú­inn til að leið­rétta frétt Bylgj­unnar sem birt­ist síð­ast­lið­inn föstu­dag þar sem fjallað var um upp­sögn hans. Í frétt­inni seg­ir S­jöfn að trún­að­ar­brestur hafi orðið á milli stjórn­ar­innar og Sveins sem rekja megi til lélegrar upp­lýs­inga­gjaf­ar. Hún segir að Sveini hafi verið sagt upp sím­leiðis því það hafi þurft að ganga frá upp­sögn hans strax og hann hafi ekki verið á leið­inni til lands­ins.

Auglýsing

Sveinn segir aftur á móti að upp­sögnin hafi borist í tölvu­pósti en ekki sím­leið­is. Hann seg­ist hafa ver­ið ­vegna vinnu minnar á fundi SCAR nefnd­ar­innar á mið­viku­dag, farið þaðan á lofts­lags­ráð­stefn­una COP24 og komið heim til Íslands á föstu­dags­kvöld.

„Síð­ustu ár hefur verið lögð áhersla á hag­nýt­ingu nútíma upp­lýs­inga­kerfa í rekstri Mat­ís, sem ávallt hefur farið án telj­andi athuga­semda í gegnum end­ur­skoðun Rík­is­end­ur­skoð­unar og end­ur­skoðun evr­ópskra sam­keppn­is­sjóða. Slíkum árangri er ein­ungis hægt að ná með því að hafa skýra yfir­sýn yfir rekst­ur­inn. Þeirri yfir­sýn hefur verið miðlað eftir fremsta megni til stjórnar síð­ast­liðna mán­uði og hafa starfs­menn Matís lagt mikið á sig við þá vinnu. Brugð­ist hefur verið við hverri þeirri fyr­ir­spurn sem stjórn­ar­for­maður og aðrir stjórn­ar­menn hafa komið með, auk hefð­bund­innar upp­lýs­inga­gjafar um rekstur félags­ins,“ segir Sveinn. 

Hann tekur það fram að hann hafi ekki hugsað sér að elta ólar við ein­stök ummæli Sjafnar Sig­ur­gísla­dóttur varð­andi ákvörðun stjórnar Matís um að nýta upp­sagn­ar­á­kvæði ráðn­ing­ar­samn­ings hans. Ákvörð­unin sé tekin og skyn­sam­leg­ast að horfa til fram­tíð­ar.

„Mig langar til að nota tæki­færið og þakka öllum sam­starfs­að­ilum Matís í gegnum tíð­ina, sem og starfs­fólki Mat­ís, fyrir frá­bært sam­starf. Mark­mið Matís eru skýr, lyk­il­gildi félags­ins eru heil­indi og þau hef ég ávallt kapp­kostað að standa fyrir sem for­stjóri. Gildir þar einu hvort um hefur verið að ræða fram­kvæmd vís­inda­rann­sókna, ráð­stöfun hug­verka og sprota­fyr­ir­tækja eða hver tengsl sam­starfs­að­ila hafa verið við félag­ið. Matís býr yfir mannauði á heims­mæli­kvarða eins og árangur í alþjóð­legum sam­keppn­is­sjóðum vitnar til um, en hlut­fall alþjóð­legrar fjár­mögn­unar er í dag um þriðj­ungur af heild­ar­tekj­um. Alþjóð­legar tekjur uxu mikið á árunum 2010-2016, í kjöl­far stefnu­mörk­unar um alþjóð­lega sam­keppn­is­hæfni félags­ins. Ef starfs­menn fá áfram tæki­færi til að starfa af þeim þrótti og heil­indum sem þeir hafa gert, verður Matís áfram í far­ar­broddi í nýsköpun í líf­hag­kerf­inu, Íslend­ingum öllum til heilla,“ segir Sveinn. 

Í fréttum á Bylgj­unni sl. föstu­dag var fjallað um upp­sögn...

Posted by Sveinn Mar­geirs­son on Monday, Decem­ber 10, 2018


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent