Arion banki gaf ekki út lánsloforð vegna Primera Air

Arion banki hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem gerðar eru athugasemdir við rangfærslur Andra Más Ingólfssonar. Arion banki segir að þrátt fyrir að bankinn hafi átt í viðræðum við Primera Air þá hafi bankinn ekki gefið fyrirheit um lánveitingu.

Primera air
Auglýsing

Í yfir­lýs­ingu frá­ ­Arion ­banki segir að þrátt fyrir að Arion banki hafi átt í við­ræðum við flug­fé­lag­ið Pri­mer­a A­ir, áður en félagið var gjald­þrota, þá hafi bank­inn hvorki gefið út lánslof­orð né nokkur fyr­ir­heit um lán­veit­ing­una. ­Arion ­banki sendi frá sér yfir­lýs­ingu til fjöl­miðla þar sem gerðar eru athuga­semdir við rang­færslur Andra Más Ing­ólfs­son­ar, fyrr­ver­andi eig­anda Pri­mer­a A­ir, í við­tali við Við­skipta­blaðið í dag.

Þrýsti ekki á að ferða­skrif­stof­urnar yrðu færðar í nýtt félag

Arion banki segir að það sem Andri Már segir í við­tal­inu sé ekki í sam­ræmi við stað­reyndir máls­ins og gerir því athuga­semdir við þær rang­færslur sem þar koma fram. Í við­tal­inu segir Andri Már að Pri­mer­a A­ir væri enn í rekstri ef ­Arion ­banki hefði verið reið­u­­bú­inn að veita félag­inu brú­­ar­fjár­­­mögnun líkt og staðið hafði til­. „Það er ljóst að ef sú fjár­­­mögnun hefði kom­ið, væri Pri­mer­a A­ir enn í rekstri,“ segir Andri Már. ­Arion ­banki greinir frá því í yfir­lýs­ing­unni að bank­inn hafi hvorki gefið út lánslof­orð né nokkur fyr­ir­heit um lán­veit­ingu vegna Pri­mer­a a­ir. 

Andri Már segir einnig í við­tal­inu að í kjöl­far gjald­þrots Pri­mer­a a­ir hafi ­Arion ­banki þrýst á að ferða­skrif­stof­ur Pri­mer­a A­ir Tra­vel Group yrðu færðar í nýtt félag. Í athuga­semd­inni frá­ ­Arion ­banka segir að bank­inn hafi ekki þrýst á að rekstur ferða­skrif­stofu Pri­mer­a Tra­vel Group yrði færður á að nýtt félag en að bank­inn hafi hins vegar sam­þykkt að sú leið yrði far­in. „­Arion ­banki sam­þykkti hins vegar að sú leið yrði farin og mat það sem svo að með því væri hags­muna bank­ans, starfs­fólks ferða­skrif­stof­anna, við­skipta­vina þeirra, sem ann­ars hefðu endað sem stranda­glópar víða um heim, og ann­arra kröfu­hafa best gætt.“ segir í yfir­lýs­ing­unni frá­ ­bank­an­um.

Auglýsing

Tra­velco tap­aði fimm millj­örðum á fall­i Pri­mer­a Air

Mán­u­dag­inn 1. októ­ber var greint frá því að flug­­­fé­lag­ið Pri­mer­a A­ir væri á leið í þrot. Í til­­­kynn­ing­unni um gjald­­þrot Pri­mer­a A­ir kom fram að  ferða­­­­skrif­­­­stof­ur Pri­mer­a Tra­vel Group töp­uðu háum fjár­­­­hæðum vegna fluga sem greidd höfðu verið til flug­­­­­­­fé­lags­ins en voru ekki flog­in. Í kjöl­farið var stofnað nýtt eign­ar­halds­fé­lag, Tra­velco ­sem byrj­aði með millj­arð í nýju hlutafé til að tryggja ­rekst­ur ­ferða­skrif­stof­unn­ar. Ferða­­skrif­­stof­ur Pri­mer­a ­sam­­stæð­­urnar voru færðar yfir í Tra­velco ­sem tók þá yfir skuldir félags­­ins við ­Arion ­Banka. Rekstur allra fyr­ir­tækj­anna var fluttur und­ir­ Tra­velco og ferða­­skrif­­stof­­urnar héldu áfram óbreyttum rekstri. Í við­tal­inu við Við­skipta­blaðið í dag sagði Andri Már að Tra­velco hafi tapað fimm millj­örðum króna á fall­i Pri­mer­a A­ir. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent