Vilja að stöður sendiherra séu auglýstar

Tíu þingmenn vilja fella í burtu ákvæði í lögum sem heimilar undanþágu um að skylt sé að auglýsa laus störf hjá ríkinu þegar um skipun í störf ráðuneytisstjóra og sendiherra í utanríkisþjónustunni er að ræða.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Auglýsing

Frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um utan­rík­is­þjón­ustu Íslands er varðar skipun ráðu­neyt­is­stjóra og sendi­herra hefur verið lagt fram. Fyrsti flutn­ings­maður er Björn Leví Gunn­ars­son en með honum eru níu þing­menn úr Sam­fylk­ing­unni, Pít­ötum og Við­reisn. 

Þing­menn­irnir vilja fella í burtu ákvæði í lögum sem heim­ilar und­an­þágu frá meg­in­reglu laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins um að skylt sé að aug­lýsa laus störf hjá rík­inu þegar um skipun í störf ráðu­neyt­is­stjóra og sendi­herra í utan­rík­is­þjón­ust­unni er að ræða. 

Frum­varpið hefur verið lagt fram tvisvar sinnum áður af þing­flokki Bjartrar fram­tíð­ar. Það er nú end­ur­flutt og í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að það sé lagt fram í ljósi mik­il­vægis þess að störf hjá hinu opin­bera séu aug­lýst og að ráðn­ing­ar­ferlið ein­kenn­ist af gagn­sæi og jafn­ræði.

Auglýsing

Í grein­ar­gerð­inni kemur jafn­framt fram að slík und­an­þága hafi í för með sér að ekki sé skylt að veita almenn­ingi aðgang að upp­lýs­ingum um nöfn og starfs­heiti umsækj­enda eins og almennt gildir um opin­ber störf.

Kröfur um gagn­sæi munu fela í sér aðhald

„Ákvæði laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins um aug­lýs­inga­skyldu byggj­ast á jafn­ræð­is­sjón­ar­miðum um að veita beri öllum sem áhuga kunna að hafa tæki­færi til að sækja um opin­bera stöðu. Með opin­berri aug­lýs­ingu er áhuga­sömum aðilum almennt veittur mögu­leiki til að leggja inn umsókn upp­fylli þeir þau almennu hæf­is­skil­yrði sem gilda um stöð­una. Þá bygg­ist reglan á því sjón­ar­miði að með þeirri aðferð verði betur að því stuðlað en ella að ríkið eigi kost á sem flestum færum og hæfum umsækj­endum þegar ráðið er eða skipað í stöðu.

Skyldan til að veita almenn­ingi upp­lýs­ingar um umsækj­endur um opin­bert starf sé þess óskað bygg­ist á sjón­ar­miði um gagn­sæi við með­ferð opin­bers valds. Mik­il­vægt er að almenn­ingur geti veitt skip­un­ar­valds­hafa aðhald um að hann gæti að fram­an­greindum sjón­ar­miðum um jafn­ræði og hæfni þegar hann fer með það vald sitt fyrir hönd almenn­ings og í hans þágu. Verði frum­varpið að lögum munu almennar heim­ildir skip­un­ar­valds­hafa til að setja mál­efna­leg skil­yrði varð­andi hæfni umsækj­enda, með til­liti til eðlis starf­anna og þeirrar ábyrgðar sem þeim fylgir, að sjálf­sögðu eiga við eins og um önnur opin­ber störf. Kröfur um gagn­sæi munu þá fela í sér aðhald á þá leið að á þessum sjón­ar­miðum sé raun­veru­lega byggt við skipun við­kom­andi aðila,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Skip­un­ar­vald sendi­herra og ráðu­neyt­is­stjóra utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins póli­tískt

Enn fremur kemur fram að hér á landi hafi tíðkast að skip­un­ar­vald sendi­herra og ráðu­neyt­is­stjóra utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sé póli­tískt og í höndum utan­rík­is­ráð­herra hverju sinni. Ekki liggi fyrir skýr við­mið sem leggja skuli til grund­vallar og sé skip­un­ar­ferlið ógagn­sætt. Hjá öðrum Norð­ur­landa­þjóðum sé þessu öðru­vísi hátt­að. 

„Í Dan­mörku, Nor­egi og Finn­landi tíðkast ekki að ein­stak­lingar sem ekki starfa þegar innan utan­rík­is­þjón­ust­unnar séu skip­aðir í störf sendi­herra án þess að staðan hafi áður verið aug­lýst laus til umsókn­ar. Almennt eru lausar stöður sendi­herra aug­lýstar innan utan­rík­is­þjón­ust­unnar þannig að starfs­mönnum hennar gef­ist kostur á að sækja um. Ákvörðun um skipun er svo tekin á grund­velli fag­legs mats á hæfi, árangri og frammi­stöðu umsækj­enda, jafn­vel að und­an­geng­inni til­lögu til rík­is­stjórn­ar, kon­ungs­valds eða for­seta. Er því ljóst að mun skýr­ari við­mið eru þar um slíkar ákvarð­anir en hér á land­i.“

Um veiga­mikla almanna­hags­muni að ræða

Í grein­ar­gerð­inni segir að telja verði að þau sjón­ar­mið sem búa að baki skyld­unni til að aug­lýsa opin­ber störf og birta upp­lýs­ingar um umsækj­endur sé þess óskað hafi mjög mikið vægi með til­liti til vand­aðrar stjórn­sýslu í þágu almenn­ings, jafn­ræðis og gagn­sæis við með­ferð opin­bers valds. Hér sé því um mjög veiga­mikla almanna­hags­muni að ræða sem eig­i ­jafnt við þegar skipað sé í stöður í utan­rík­is­þjón­ust­unni og endranær. Sendi­herrar og ráðu­neyt­is­stjóri utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sinni afar mik­il­vægum störfum og verk­efnum í þágu þjóð­ar­innar og því sé mjög mik­il­vægt að val í þau störf bygg­ist á hæfni og að jafn­ræðis sé gætt. Þá skipti máli að ákvörð­un­ar­fer­ill­inn sé gagn­sær og haf­inn yfir vafa og tor­tryggni eins og hægt er. Frum­varpið sé liður í því að auka gagn­sæi og aðhald í þessum efn­um.

Gera megi ráð fyrir að þeir sem starfað hafa í utan­rík­is­þjón­ust­unni um ára­bil búi almennt þegar yfir hæfni og reynslu sem nauð­syn­leg er til að sinna störfum sendi­herra og ráðu­neyt­is­stjóra. Um til­flutn­ing slíkra aðila án aug­lýs­inga­skyldu muni með breyt­ing­unni gilda almennar reglur um til­flutn­ing milli emb­ætta hjá hinu opin­bera líkt og hjá öðrum ráðu­neyt­um. Við beit­ingu þess­arar heim­ildar sé ráð­herra þó sem endranær skylt að líta til hæfni þeirra sem skip­aðir eru með til­liti til þarfa utan­rík­is­þjón­ust­unnar og ann­arra mál­efna­legra og lög­mætra ástæðna sem gæta ber að við ráðn­ingu og skipun í opin­ber störf og stöð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent