Kvika á aðalmarkað kauphallarinnar

Kvika er á leið á aðalmarkaðinn í kauphöllinni, en forstjórinn segir reynsluna af First North markaðnum hafa verið góða.

armann-orvaldsson_10054510536_o.jpg
Auglýsing

Stjórn Kviku banka hefur tekið ákvörðun um að stefna á skrán­ingu á aðal­markað Nas­daq Iceland fyrir lok fyrsta árs­fjórð­ungs 2019. Ekki er gert ráð fyrir hluta­fjár­út­boði sam­hliða skrán­ing­unni.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bank­anum til kaup­hallar, en bank­inn hefur verið skráður á First North mark­að­inn. 

Ármann Þor­valds­son, for­stjóri bank­ans, segir í til­kynn­ingu að bank­inn hafi haft góða reynslu af því að vera skráður First North mark­að­inn. „Áætlun fyrir árið 2019 gerir ráð fyrir áfram­hald­andi góðum rekstri. Í nóv­em­ber var und­ir­rit­aður kaup­samn­ingur um allt hlutafé í Gamma Capi­tal Mana­gement. Í ljósi sterkrar fjár­hags­stöðu bank­ans er ekki þörf á að ráð­ast í útgáfu nýrra hluta vegna kaupanna. Hluta­bréf bank­ans voru skráð á First North mark­að­inn í mars á þessu ári. Það hefur gefið góða raun sem má t.d. sjá á því að hlut­höfum bank­ans hefur fjölgað mikið og eru nú um 700 tals­ins. Það er því eðli­legt skref að skrá hluta­bréfin á Aðal­markað Nas­daq Iceland,“ segir Ármann. 

Auglýsing

Stjórn Kviku hefur sam­þykkt rekstr­ar­á­ætlun bank­ans fyrir árið 2019. Þar sem fyr­ir­varar um sam­þykki hlut­hafa­fundar Kviku og eft­ir­lits­að­ila höfðu ekki verið upp­fylltir við gerð áætl­un­ar­innar tekur hún ekki til­lit til kaupa á Gamma Capi­tal Mana­gement hf., að því er segir í til­kynn­ingu.

„Áætl­unin gerir ráð fyrir að hagn­aður fyrir skatta verði 1.990 m. kr. og arð­semi eig­in­fjár fyrir skatta því 15,3%. Heild­ar­tekjur árs­ins 2019 eru áætl­aðar 6.450 m. kr., þar af er áætlað að 60% verði þókn­ana­tekj­ur, 31% vaxta­tekjur og 9% fjár­fest­inga­tekj­ur. ­Á­ætl­aðar þókn­ana­tekjur skipt­ast á milli sviða með eft­ir­far­andi hætti; 51% eigna­stýr­ing, 16% mark­aðsvið­skipti, 15% fyr­ir­tækja­svið, 13% fyr­ir­tækja­ráð­gjöf og 5% ann­að. ­Á­ætlað er að heild­ar­eignir verði 108 ma. kr. í lok árs 2019,“ segir í til­kynn­ingu.

Til sam­an­burðar eru heild­ar­eignir Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­ans sam­tals rúm­lega 3 þús­und millj­arðar króna. Hvor banki fyrir sig er því um tíu sinnum stærri en Kvika, sé horft til heild­ar­eigna sem mæli­kvarða.

Einn banki er skráður á aðal­markað kaup­hall­ar­inn­ar, Arion banki. Hann er einnig skráður á mark­að­inn í Sví­þjóð.

Afkoma bank­ans getur vikið tölu­vert frá áætl­un, m.a. vegna mark­aðs­að­stæðna. „Stjórn Kviku hefur sam­þykkt að við­mið um upp­lýs­inga­gjöf til mark­aðs­að­ila vegna slíkra frá­vika skuli vera ef bank­inn telur að afkoma árs­ins fyrir skatta, fyrir bank­ann í heild, víki meira en 10% frá útgef­inni áætl­un, segir í til­kynn­ingu.

Stjórn­ar­for­maður Kviku er Kristín Pét­urs­dótt­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent