Slæmt ár á Wall Street virðist ætla að enda illa

Ávöxtun hlutabréfa hefur verið að meðaltali verið neikvæð í Bandaríkjunum á þessu ári. Vaxtahækkanir leggjast illa í fjárfesta, en búast má við frekari skrefum í þá átt á nýju ári.

stelpan á wall street
Auglýsing

Und­an­farnar vikur hafa verið skelfi­legar á Wall Street en hluta­bréf hafa fallið í verði, og nú virð­ist ljóst, að hluta­bréfa­vísi­töl­urnar enda flestar lægri í lok þessa árs, en þær voru í byrjun árs­ins. 

Í umfjöllun Wall Street Journal segir að fjár­festar hafi tekið fjórum vaxta­hækk­unum Seðla­banka Banda­ríkj­anna illa, en nú síð­ast í gær voru vextir hækk­aðir úr 2,25 pró­sent í 2,5 pró­sent. 

Í dag hefur S&P 500 vísi­talan lækkað um 1,5 pró­sent og olíu­verð hefur haldið áfram að lækka. Lækk­unin á tunn­unni af hrá­olíu hefur verið mik­il, 4,5 pró­sent. Tunnan kostar nú um 46 Banda­ríkja­dali en fyrir aðeins um 7 vik­um, kost­aði hún tæp­lega 85 Banda­ríkja­dali. Þetta eru góðar fréttir fyrir Ísland og sparar þjóð­ar­bú­inu gjald­eyri, og dregur úr verð­bólgu­þrýst­ingi.



Tími ódýrra pen­inga á mark­aði virð­ist lið­inn, en frá 2008 og fram í des­em­ber 2016 hélst vaxta­stig nálægt núlli. Þetta leiddi til mik­illa fjár­fest­inga í verð­bréf­um, með til­heyr­andi hækkun á hluta­bréf­um. 

Auglýsing



Annað sem hefur valdið fjár­festum miklum áhyggjum á þessu ári, er við­skipta­stríð Banda­ríkj­anna og Kína. Þó það hafi ekki varað lengi, þá virð­ast fjár­festar hræddir um afleið­ingar þess til lengri tíma. Mestu munar um háa tolla á inn­flutn­ing á stáli og áli, frá 10 til 25 pró­sent, frá Kína til Banda­ríkj­anna. 

Þetta hefur leitt til kostn­að­ar­hækk­ana hjá mörgum fram­leið­end­um, meðal ann­ars í bíla­iðn­aði í Banda­ríkj­un­um. Und­an­farna mán­uði hafa þeir gripið til upp­sagna til að rétta af rekst­ur­inn, á mörgum stöðum í Banda­ríkj­un­um. 



Staða efna­hags­mála í Banda­ríkj­unum þykir þrátt fyrir lækk­anir á hluta­bréfa­mark­aði, nokkuð góð. Atvinnu­leysi mælist nú um 4 pró­sent, og Seðla­banki Banda­ríkj­anna gerir ráð fyrir að hag­vöxtur verið á bil­inu 2 til 3 pró­sent á næsta ári. Þó þykja blikur á lofti, meðal ann­ars vegna þess að verð­bólgu­þrýst­ingur hefur verið að aukast, og fast­eigna­verð víða gefið eft­ir, sam­hliða því að vextir hafa farið hækk­andi á fast­eigna­lán­um. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent