Verkalýðsfélag Akraness klýfur sig frá samfloti með Starfsgreinasambandinu

Félagið hefur afturkallað samningsumboð til Starfsgreinasambandsins og gerir Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA ráð fyrir því að kjaradeilunni verði vísað til Ríkissáttasemjara í dag eða á morgun.

Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson
Auglýsing

Verka­lýðs­fé­lag Akra­ness hefur ákveðið að kljúfa sig frá sam­floti með Starfs­greina­sam­band­inu í kjara­við­ræð­unum eins og Efl­ing gerði í gær. Þetta kemur fram í frétt RÚV en Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður VLFA stað­festi þetta í sam­tali við frétta­stofu RÚV í morg­un. 

Félagið hefur aft­ur­kallað samn­ings­um­boðið og gerir Vil­hjálmur ráð fyrir því að kjara­deil­unni verði vísað til Rík­is­sátta­semj­ara í dag eða á morg­un.

Samn­inga­­nefnd Efl­ingar sam­­þykkti í gær að draga samn­ings­um­­boð sitt til Starfs­­greina­­sam­­bands­ins til baka. Til­­laga þess efnis var sam­­þykkt með yfir­­­gnæf­andi meiri­hluta á fundi nefnd­­ar­inn­­ar. Í kjöl­far þess hef­ur ­Sól­­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­­maður Efl­ing­­ar, umboð til að ákveða hvort að deil­unni verði vísað til rík­­is­sátta­­semj­­ara. Hún­ ­segir að Efl­ing hygg­ist vísa kjara­­deil­unni til rík­­is­sátta­­semj­­ara sem allra fyrst.

Auglýsing

Samn­inga­­nefnd Efl­ingar veitti Starfs­­greina­­sam­­band­inu samn­ings­um­­boðið þann 25. sept­­em­ber síð­­ast­lið­inn. ­Fyrr í þess­­ari viku felldi fundur aðild­­ar­­fé­laga Starfs­­greina­­sam­­bands­ins til­­lögu um að vísa kjara­­samn­inga­við­ræðum strax til rík­­is­sátta­­semj­­ara. Ell­efu félög greiddu atkvæði gegn því en sjö vildu sam­­þykkja. Meðal þeirra sem vildu sam­­þykkja var Efl­ing.

Í kjöl­far þess að for­­manna­fundur Starfs­­greina­­sam­­bands­ins hafn­aði því að vísa kjara­­deil­unni strax til rík­­is­sátta­­semj­­ara ákvað Efl­ing­­ar­­fólk að end­­ur­­skoða sam­­flot­ið. Boðað var til fundar í Efl­ingu í gær og sam­­kvæmt Sól­­veigu Önnu var ákvörð­unin um að draga umboðið til baka nær ein­róma nið­­ur­­staða fund­­ar­ins. „Þetta var því sem næst ein­róma nið­­ur­­staða fund­­ar­ins og næstu skref eru að ég hef heim­ild frá samn­inga­­nefnd­inni til að taka ákvörðun um hvenær við munum vísa við­ræð­unum til sátta­­semj­­ara,“ segir Sól­­veig Anna í Frétta­­blað­inu í dag.

Sól­­veig Anna sagði að félag sitt hefði rót­tæk­­ari sýn á kjara­bar­átt­una en þeir sem ráða för innan sam­­flots Starfs­­greina­­sam­­bands­ins í við­tali við RÚV í gær­­kvöld­i. Hún sagði jafn­­framt að Efl­ing hygði vísa kjara­­deil­unni strax til rík­­is­sátta­­semj­­ara svo að emb­ættið tæki strax að sér verk­­stjórn samn­inga­við­ræðna við við­­semj­endur Efl­ing­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent